Tveimur mörkum frá ódauðleika: Andri Rúnar fær góðar kveðjur frá 19 marka klúbbnum Tómas Þór Þórðarson skrifar 23. september 2017 07:00 Andri Rúnar á leik á móti KA á sunnudaginn og svo annan á móti Fjölni næsta laugardag. Með tveimur mörkum bætir hann metið. vísir/Stefán
Andri Rúnar Bjarnason, framherji Grindavíkur í Pepsi-deild karla í fótbolta, er tveimur mörkum frá ódauðleika. Framherjinn öflugi er búinn að skora 18 mörk í Pepsi-deildinni og hefur tvo leiki til að jafna metið goðsagnakennda yfir flest mörk á einu tímabili eða hreinlega bæta það. Metið stendur í 19 mörkum og hefur gert það frá því 1978 þegar Skagamaðurinn Pétur Pétursson skoraði 19 mörk fyrir Íslandsmeistara ÍA. Framarinn Guðmundur Torfason jafnaði það fyrstur árið 1986 og Þórður Guðjónsson skoraði svo 19 mörk fyrir ÍA árið 1993. Síðastur til að skora 19 mörk í efstu deild var markakóngurinn Tryggvi Guðmundsson sem setti 19 fyrir ÍBV árið 1997. Þrátt fyrir að fjölgað væri í efstu deild árið 2008 og nú spilaðir 22 leikir hefur enginn í raun komist nálægt því að skora 19 mörk. Þrír markahrókar (Steingrímur Jóhannesson, ÍBV 1998, Guðmundur Steinarsson, Keflavík 2008 og Björgólfur Takefusa, KR 2009) skoruðu 16 mörk en enginn hefur sett fleiri en það síðan Tryggvi jafnaði metið síðast. Andri spilaði fyrst í efstu deild árið 2015 og skoraði þá tvö mörk í 17 leikjum fyrir Víking. Hann var svo lánaður í Inkasso-deildina á síðustu leiktíð en stendur nú á barmi þess að skáka nokkrum af mestu goðsögnum íslenska boltans.Þórður Guðjónsson skoraði 19 mörk fyrir ÍA árið 1993.vísir/ernir„Algjört öskubuskuævintýri“ „Mér finnst alveg frábært að fylgjast með Andra Rúnari. Þetta er frábært, algjört öskubuskuævintýri,“ segir Þórður Guðjónsson, fyrrverandi atvinnu- og landsliðsmaður í fótbolta sem skoraði 19 mörk fyrir Íslandsmeistara ÍA árið 1993. „Það er ótrúlegt að sjá hvað smá viðhorfsbreyting hjá einum fótboltamanni getur gert þrátt fyrir að hann sé 26 ára gamall. Þetta er bara geðveikt og ég vona svo innilega að hann nái þessu,“ segir Þórður, en meinar hann það? „Algjörlega. Met eru til að slá þau. Þetta hefur staðið í alltof langan tíma. Það er klárlega kominn tími á að einhver skori 20 mörk. Fótboltinn þróast bara svona. Einu sinni voru spilaðir fjórtán leikir og þá átti einhver metið, svo voru 18 leikir og núna 22. Það er kominn tími á nýtt met,“ segir Þórður. Andri Rúnar er aðeins á sinni annarri leiktíð í efstu deild og sagan því enn ótrúlegri fyrir vikið. „Þessi drengur er öðrum leikmönnum mikil fyrirmynd. Hann er að sýna að það er aldrei of seint að taka til hjá sjálfum sér og ætla sér að verða eitthvað sama hversu menn eru gamlir. Vonandi skilar þetta honum bara þessu meti og öskubuskuævintýrið verður fullkomnað.“Pétur Pétursson skoraði 19 mörk í 17 leikjum fyrir ÍA árið 1978.vísir/andri marinó„Segir margt um hina framherjana“ Pétur Pétursson setti fyrstur metið þegar hann skoraði 19 mörk árið 1978 en hann er sá eini sem hefur gert það í 17 leikjum. Hann þekkir aðeins til Andra Rúnars og samgleðst honum. „Ég var með 2. flokkinn hjá Víkingi í fyrra og Andri fór ekki í utanlandsferðina með aðalliðinu. Hann kom því á æfingar hjá mér og það virðist sem svo að ég hafi kennt honum það mikið að nú geti hann klárað þetta blessaða met,“ segir Pétur og hlær við. Hann hefur mikla trú á Vestfirðingnum: „Ég held að hann slái þetta met miðað við hvernig hann er að spila. Þegar við framherjarnir förum í gang þá er alveg sama hvar maður stendur þegar maður skýtur á markið. Boltinn er bara alltaf inni,“ segir Pétur sem er ekkert fúll yfir því að missa metið. „Mér finnst alveg vera kominn tími á að þetta met verði slegið. Þetta er orðið 39 ára gamalt. Það segir nú ýmislegt um hina framherjana. Maður verður nú aðeins að skjóta á þá,“ segir Pétur hlæjandi og heldur áfram: „Ég tel mig hafa lagað Andra Rúnar til eins og með þetta blessaða pitsuát sem hann er alltaf að tala um. Ég hef aldrei skilið hvernig menn geta étið pitsur á næturnar. Það er frábært að sjá hvernig hann hefur tekið sig á.“Guðmundur Torfason og Pétur Pétursson fallast í faðma eftir bikarúrslitaleik Fram og ÍA 1986 en það ár skoraði Guðmundur 19 mörk fyrir Fram í efstu deild.vísir„Verður að slaka á“ „Það er alveg magnað að sjá drenginn eftir að hann tók til í sínum málum. Það hefur glatt mig mikið að fylgjast með framgöngu Andra,“ segir Framarinn Guðmundur Torfason sem skoraði 19 mörk á Íslandsmeistaraári Safamýrarliðsins árið 1986. Guðmundur hefur verið mikið tengdur Víkingi undanfarin ár og gat því fylgst aðeins betur en margir með Andra Rúnari. „Ég man að þegar ég jafnaði metið þá fór ég inn í veturinn fyrir tímabilið og æfði sem aldrei fyrr. Hann gerði það sama og er að uppskera. Með þessu er hann að senda ungum drengjum ákveðin skilaboð. Það er ýmislegt hægt ef menn setja metnað í hlutina og hafa áhuga,“ segir Guðmundur sem hrífst af fjölbreytni Andra þegar kemur að markaskorun. „Hann er með frábær skot, frábæra skalla og getur klárað með vinstri og hægri.“ Eins og hinir í 19 marka klúbbnum sér Guðmundur ekkert eftir metinu. „Þetta er ekkert erfitt fyrir mig. Þetta met var alltaf að fara að falla á einhverjum tímapunkti. Við Pétur allavega segjum nú alltaf á milli okkar að við eigum metið í tíu liða deild,“ segir hann en hvaða ráð getur hann gefið Andra Rúnari? „Hann verður að slaka á í síðustu leikjunum og vera hann sjálfur. Mörkin verða að fá að koma til hans.“Tryggvi Guðmundsson skoraði 19 mörk fyrir meistaralið ÍBV árið 1997.vísir/GVA„Óska honum til hamingju“ Síðasti maðurinn til að jafna metið var Tryggvi Guðmundsson meistaraár Eyjamanna árið 1997. Síðan þá hefur enginn komist nálægt því. „Mér finnst Andri alveg magnaður drengur. Þetta er sveitastrákur að vestan sem er að blómstra seint. Það hefur bara allt fallið með honum fyrir utan þessar tvær vítaspyrnur sem hann er búinn að brenna af. Hann ætti að vera kominn með þetta met nú þegar!“ segir Tryggvi. Markahrókurinn frá Vestmannaeyjum sér sjálfan sig í Andra Rúnari og getur tengt við það sem er að gerast hjá honum. „Þetta minnir svolítið á mína sögu þó að við yrðum reyndar Íslandsmeistarar. Andri er svona utanbæjargaur sem allt í einu datt í gírinn. Það er rosalega erfitt fyrir okkur framherjana að útskýra hvað er í gangi þegar svona vel gengur. Stundum er bara allt inni sama hvað maður gerir,“ segir hann. Tryggvi sér ekkert að því að missa metið en heldur í 18 leikina eins og Guðmundur. „Andri er „bara“ með 18 mörk í 20 leikjum en við skoruðum 19 í 18 leikjum. Við sem eigum metið erum fljótir að finna alls konar afsakanir til að gleymast ekki. Það er kominn tími á þetta og ég sé hann bara ekki klikka á þessu úr því sem komið er. Ég óska Andra bara til hamingju með metið hér og nú!“
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Marcus Rashford búinn að fá nóg Enski boltinn Mætti með seðlabúntin inn í klefa í sigurvímu Fótbolti Kjartan svarar gamla stjóra sínum: „Ekki ánægjulegt að spila undir hans stjórn“ Fótbolti Messi skoraði en allt varð vitlaust í lokin Fótbolti Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Enski boltinn „Það koma klárlega dagar sem ég er hrædd“ Fótbolti Eiður Smári þjálfar KA Íslenski boltinn „Takk fyrir mig körfubolti“ Körfubolti Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina Enski boltinn Víkingur berst fyrir sæti í Sambandsdeildinni í beinni Fótbolti Fleiri fréttir Eiður Smári þjálfar KA Mögnuð þrenna Köru í Keflavík Kara með þrennu fyrir KR og Tindastóll fallið Hvetur fólk til að sjá „skemmtilegasta Keflavíkurlið í mörg ár“ Botnar ekkert í Brazell: „Alltaf er hann svo sáttur með allt“ Kveðja Bjarna með miklum söknuði „Hvaða grín er þetta með Gylfa Sig?“ Sjáðu mörkin: Methafinn nýtti löngu köstin og Róbert elskar að mæta Stjörnunni Þróttur situr á toppi Lengjudeildarinnar Ægir fallið og ólíkir leikir í Lengjudeildinni Uppgjörið: Valur - KA 4-4 | Bæði lið hæfilega sátt eftir markasúpu Uppgjörið: Fram - Stjarnan 3-1 | Framarar nálgast annað sætið Sjóðheit Ída Marín kveður FH Sjáðu glæsimark Gylfa, prjónaskap Hauks og KR skora tvö á mínútu „Þetta gekk eins og í sögu“ „Leiðinlegt að segja það en þetta er svo mikið af einstaklingsmistökum“ „Við þurfum að læra í þessum heimi“ Sölvi Geir: „Allt of snemmt að fara að kíkja á töfluna“ „Gott að bjarga sjálfum sér og verja þetta“ „Gylfi skorar af vítapunktinum, það vita það allir“ „Langar bara að verða betri í fótbolta“ Helgi Guðjóns: Tökum eldgömlu klisjuna um einn leik í einu Uppgjörið: ÍBV - ÍA 1-3 | Með þrjú stig upp á fasta landið Uppgjörið: FH - Víkingur R. 2-4 | Fyrsta tap FH í áttatíu daga Uppgjörið: KR – Breiðablik 3-3 | Stig sem skilur lítið eftir sig Jón Daði kvaddi á sama degi og Viðar skoraði fimm „Horfum bara á að enda tímabilið í topp sex“ „Þurfum að læra að spila leiki af þessari stærðargráðu“ „Við þurfum að gefa meira í þetta maður“ „Held að þetta hafi verið góð auglýsing fyrir Bestu deild kvenna“ Sjá meira