Loftmengun alls staðar yfir viðmiðunarmörkum í London Kjartan Kjartansson skrifar 6. október 2017 18:06 Sumir íbúar London hafa mótmælt viðvarandi loftmengun í borginni. Vísir/AFP
Mælingar á loftgæðum í London benda til þess að í öllum hverfum borgarinnar fari mengun yfir alþjóðleg viðmiðunarmörk. Nærri því allir borgarbúar búa á svæðum þar sem mengun er helmingi meiri en æskilegt getur talist. Styrkur mengandi rykagna í flokknum PM2.5 í miðborg London er nærri því tvölfalt hærri en viðmiðunarmörk Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar (WHO), að því er kemur fram í frétt The Guardian. Mörkin eru 10 míkrógrömm á hvern rúmmetra lofts. Rykagnir af þessu tagi geta haft alvarleg áhrif á heilsu fólks. Þær geta meðal annars aukið hættuna á öndunar- og hjarta- og æðasjúkdómum. Hættan er einna mest fyrir börn en mengunin getur valdið því að þau þrói með sér astma síðar á lífsleiðinni.Mengun enn yfir mörkum þrátt fyrir tilskipun dómstólsSadiq Khan, borgarstjóri London, segir niðurstöður mælinganna „ógeðslegar“. Ekki síst er það sú staðreynd að 95% borgarbúa, um 7,9 milljónir manna, búi við loftmengun sem er 50% meiri en WHO dregur mörkin við. „Við ættum að skammast okkur fyrir að að unga fólkið okkar, næsta kynslóð Londonbúa, verði fyrir þessum örsmáum rykögnum sem skaða alvarlega lungun þeirra og stytta lífslíkur þeirra,“ segir Khan. Það er ekki aðeins í London sem loftgæði eru slök á Bretlandi. Alls er styrkur rykagna yfir mörkum í 37 af 43 skilgreindum svæðum þar. Sú staða er óbreytt frá árinu 2015 þrátt fyrir að æðsti dómstóll landsins hafi skipað ríkisstjórninni að grípa til tafarlausra aðgerða til að ráða bót á því.
Mest lesið Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Erlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Fleiri fréttir Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Sjá meira