„Bíllinn var góður strax í byrjun. Auðvitað þarf Lewis [Hamilton] að hugsa um heimsmeistaramótið og ég gat því tekið smá áhættu,“ sagði Verstappen, afmælisbarn gærdagsins.
„Ég vil þakka áhorfendum hér, þetta er síðasta keppnin hér og við höfum aldrei séð fleiri áhorfendur. Mér líður vel en keppnin var erfið. það er þó klárt að við höfum verk að vinna í tenglsum við bílinn,“ sagði Lewis Hamilton á Mercedes sem varð annar.
„Ég reyndi að ná fram úr Valtteri Bottas snemma. Svo varð ég einmanna þangað til Sebastian Vettel kom á fleygiferð og ég hélt ég myndi eiga fullt í fangi með að halda aftur af honum. Hann átt bara eina alvöru tilraun og svo var hann útbrunninn,“ sagði Daniel Ricciardo á Red Bull sem varð þriðji.
„Við bjuggumst ekki við að vinna Mercedes hreinlega á brautinni. Það er komin tími til að Max njóti smá heppni. Lewis var alltaf að fara að hugsa um heimsmeistaramótið. Það var sætt að sjá Max taka fram úr Hamilton í baráttu þeirra um fyrsta sætið,“ sagði Christian Horner, liðsstjóri Red Bull.

Vettel tók stýrið með sér úr bílnum og fékk far með Pascal Wehrlein, tveir hlutir sem er bannað að gera. Einhverjar afleiðingar gætu orðið af gjörðum Vettel.
„Þetta var ekki viljandi hjá okkur, hann beygði inn í mig. Ég er afar ánægður með keppnina og gott að ná í stig í dag,“ sagði Lance Stroll sem varð áttundi í dag á Williams.
„Þetta var ekki helgin sem við bjuggumst við að eiga hér. Við töldum okkur eiga raunverulega góða möguleika. Hitastig er að leika okkur grátt. Glugginn til að vinna með er minni en venjulega, við vitum ekki af hverju,“ sagði Valtteri Bottas sem varð fimmti á Mercedes.
„Heilsan er öll að koma til, það er komu tímar í keppninni þar sem ég var viss um að ég þyrfti að gefa helgina upp. Það er gott að ég náði að klára og það er mikilvægt að ná í stigin,“ sagði Sergio Perez sem varð sjötti í dag á Force India. Hann var búinn að vera lasinn.
„Þetta var mín besta keppni í Formúlu 1, við vissum ekki alveg hvar við myndum enda í dag. Það er stórkostlegt að ná sjöunda sætinu,“ sagði Stoffel Vandoorne, sem varð sjöundi á McLaren.