Ráðist á bandarískan þingmann við heimili hans Kjartan Kjartansson skrifar 5. nóvember 2017 07:53 Ekki er vitað um tilefni árásarinnar á Rand Paul. Vísir/AFP
Nágranni bandaríska þingmannsins Rands Paul hefur verið handtekinn eftir að hann réðist á repúblikanann við heimili hans í Kentucky-ríki í gær. Paul er sagður lítillega lemstraður eftir árásina en nágranninn er sakaður um að hafa tæklað hann aftan frá. Samkvæmt handtökuskipuninni játaði nágranninn, sem er tæplega sextugur, að hafa farið inn á lóð Paul í Bowling Green og að hafa tæklað hann á föstudag. Ekki liggur hins vegar fyrir hver ástæða árásarinnar var, að því er segir í frétt Politico. Talsmaður Paul segir að árásin hafi öldungadeildarþingmanninum að óvörum en að allt í lagi sé með hann. Í handtökuskipuninni kemur hins vegar fram að Paul hafi átt erfitt með andardrátt eftir árásina sem gæti skýrst af meiðslum á rifbeini og að honum hafi blætt úr skurðum í kringum munninn.Washington Post hefur eftir Robert Porter, vini Paul til margra ára, að hann hafi verið að vinna í garðinum með heyrnarhlíf þegar nágranninn réðst óvænt á hann. Þingmaðurinn hafi ekki orðið var við manninn fyrr en hann lét til skarar skríða. Þeir hafi ekki verið í miklum samskiptum í mörg ár og var Porter ekki kunnugt um að þeim hefði slegið saman áður. Paul bauð sig fram í forvali repúblikana fyrir forsetakosningarnar í fyrra en bar ekki árangur sem erfiði. Hann hefur undanfarið beitt sér gegn tilraunum flokksbræðra sinna til að afnema sjúkratryggingalögin sem kennd hafa verið við Barack Obama, fyrrverandi forseta. Hann hefur einnig varið stefnumál Donalds Trump, forseta.
Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent Deila um sóttkví fer alla leið Innlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent Fleiri fréttir Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Sjá meira