Prinsar og ráðherrar handteknir í herferð gegn spillingu í Sádí-Arabíu Kjartan Kjartansson skrifar 5. nóvember 2017 07:14 Mohammed krónprins hefur áður lagt til viðamikla áætlun um félagslegar og efnahagslegar breytingar í Sádí-Arabíu. Vísir/AFP
Ellefu prinsar, fjórir ráðherrar og tugir fyrrverandi ráðherra voru handteknir á vegum nýrrar eftirlitsnefndar með spillingu í Sádí-Arabíu í gær. Krónprinsinn Mohammed bin Salman, sem fer fyrir nefndinni, hefur heitið því að nútímavæða landið. Ekki hafa verið gefin upp nöfn þeirra handteknu né hvað þeir eru sakaðir um, að því er segir í frétt breska ríkisútvarpsins BBC. Handtökurnar áttu sér stað aðeins nokkrum klukkustundum eftir að spillingarnefndin var stofnuð með konunglegri tilskipun Salmans konungs.New York Times fullyrðir aftur á móti að Alwaleed bin Talal, einn auðugustu manna heims, sé á meðal þeirra sem voru handteknir. Talal á eða hefur átt hluti í stórfyrirtækjum eins og News Corp, Citigroup, Twitter auk þess sem hann á gervihnattasjónvarpsstöðvar með mikið áhorf í arabaheiminum. Sérfræðingur BBC í öryggismálum telur að aðgerðirnar séu liður í tilraunum Mohammeds krónsprins til að festa völd sín í sessi og koma á umbótum í Sádí-Arabíu. Áður höfðu yfirmenn þjóðvarðliðs landsins verið reknir og þeim skipt út. Mohammed krónprins, sem er 32 ára gamall, hefur sagt að „hófsamt íslam“ sé lykilatriði í áætlun hans um að nútímavæða Sádí-Arabíu. Í því skyni hygðist hann svæla út leifar öfgahyggju á næstunni.
Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Deila um sóttkví fer alla leið Innlent Fleiri fréttir Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Sjá meira