Herjað á einkennisdýr Ástralíu Stefán Ó. Jónsson skrifar 10. nóvember 2017 07:06 Kóalabirnir eru af mörgum taldir einkennandi fyrir ástralskt dýralíf. Þessi kóalabjörn tengist fréttinni ekki beint. Vísir/Getty
Ástralska lögreglan rannsakar nú það sem sagður er vera dýraníðsfaraldur í landinu. Undanfarna mánuði hafa fundist hræ dýra, sem flest eru einkennandi fyrir hið fjölbreytta lífríki landsins, víðsvegar um Ástralíu, nú síðast á mánudag. Þar hafði kóalabjörn verið drepinn og eyrun skorin af honum. Hræ hans fannst um 250 kílómetra vestan af Melbourne. Lögreglan segir óljóst hvort hann hafi verið á lífi þegar eyrun voru skorin af. Þó að kóalabirnir séu ekki í útrýmingarhættu er stofn þeirra sagður viðkvæmur. Talið er að fjöldi þeirra í náttúrunni nái ekki 100 þúsund dýrum. Haft er eftir lögreglunni á vef breska ríkissjónvarpsins að málið sé óhugnanlegt og að það sé rannsakað í samhengi við fleiri dráp á þessu ári. Er í því samhengi vísað til kengúru sem skotin var í hausinn í Melbourne í júní. Hafði hún verið bundin við stól og áfengisflösku komið fyrir á hræinu. Þá hafa fundist hræ vallabía sem einnig virðast hafa drepist af mannavöldum. Lögreglan hefur biðlað til almennings um upplýsingar sem kunna að varpa ljósi á málin.
Mest lesið Verja fúlgum fjár í að hafa upp á þeim sem gagnrýna ICE á netinu Erlent Skipverjar gangi örna sinna í vaska og lögmaðurinn fullur Innlent Ítrekað hjólað á móti umferð Innlent „Hverjir eru á bak við það?“ Erlent Fjölskyldan í haldi vegna gruns um innflutning fíkniefna Innlent Segir lögreglu skrumskæla gamansöm ummæli Innlent Útsýnispallurinn talinn öruggur þrátt fyrir sprungur Innlent Landsmönnum fjölgaði um 1.450 á öðrum ársfjórðungi Innlent Meirihluti telur vexti lækka en undanþágu í sjávarútvegi ólíklega Innlent Uppgefinn einyrki við Hverfisgötu kveður Innlent Fleiri fréttir Verja fúlgum fjár í að hafa upp á þeim sem gagnrýna ICE á netinu „Hverjir eru á bak við það?“ Greiða leið fyrir Blanche að embætti dómsmálaráðherra „Veiddu“ grænmetissala með dróna Lýsti mikilli örvæntingu áður en hún myrti börnin sín „Hún féll saman eins og regnhlíf“ Drengir í haldi grunaðir um undirbúning hryðjuverkaárásar í skóla Von der Leyen kallar eftir átaki um öruggari landamæri Lýsa yfir neyðarástandi í Washington vegna gróðurelda Niðurgangspestin hefur dregið tvo til dauða Þrjú börn látin eftir drónaárás á baðströnd Á þriðja tug enn saknað eftir að kviknaði í ferju Viðræður við Íran hefjist á morgun Játaði að hafa flutt líkið í ferðatösku Sviðið flak annarrar þyrlunnar hafnaði á vegi Dani lést í þyrluslysinu Danir auka vígbúnað í Færeyjum Þyrlur slökkviliðs skullu saman í miðju lofti Trump boðar hlé á árásum og fullyrðir að samkomulag sé í sjónmáli Hröpuðu til bana í skoðunarflugi yfir Nazca-línurnar Þrír látnir í sprengingu á veitingastað í Moskvu Ráðherrar Evrópu halda neyðarfund á þriðjudag Harðar deilur innan klerkastjórnarinnar Níu felldir í Kænugarði Kallað eftir skyndifundi innanríkisráðherra ESB Myndir: Tugir þúsunda syntu til Ceuta Skilaboð send úr símanum í blekkingarskyni Hamasliðar samþykkja að afvopnast Tæplega 50 þúsund manns synt til Ceuta á einum sólahring Trump segir Hamas samþykkja að afvopnast og Ísrael að hverfa frá Gasa Sjá meira