Bandarískum hermönnum fyrirskipað að hætta að drekka Stefán Ó. Jónsson skrifar 20. nóvember 2017 06:47 Herstöð Bandaríkjamanna á Okinawa hýsir þúsundir hermanna. Vísir/AFp
Bandaríkjaher hefur lagt blátt bann við áfengisdrykkju á alla liðsmenn sína í Japan í kjölfar banaslyss. Þá hefur þeim jafnframt verið bannað að yfirgefa herstöðvar og heimili sín að sögn breska ríkisútvarpsins sem hefur þetta eftir heimildarmönnum innan úr Bandaríkjaher. Þetta er í annað sinn á tveimur árum sem bandarískir hermenn eru settir í áfengis- og útgöngubann. Bönnunum var komið á eftir að drukkinn bandarískur hermaður ók jeppa sínum í gær inn í aðra bifreið með þeim afleiðingum að ökumaðurinn, sem var innfæddur, beið bana. Slysið varð á eyjunni Okinawa þar sem helmingur allra bandarískra hermanna í Japan, næstum 26 þúsund manns, dvelur. Heimamenn hafa lengi haft horn í síðu þessa gríðarlega hermannafjölda sem þeir segja ábyrgan fyrir fjölda afbrota og slysa á eyjunni síðustu ár. Andstaða þeirra við herinn hefur vaxið jafnt og þétt frá árinu 1995 þegar hópur hermanna nauðgaði 12 ára stúlku frá Okinawa. Þá var innfædd kona myrt á eyjunni í fyrra af fyrrverandi hermanni. Óttast er að upp úr kunni að sjóða eftir banaslysið í gær. Eyjan er Bandaríkjamönnum og Japönum hernaðarlega mikilvæg enda ekki nema um 500 kílómetra undan ströndum Taívans.
Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Fleiri fréttir Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Sjá meira