Köstuðu látlaust upp meðan á leiknum stóð Kristín Ólafsdóttir skrifar 3. desember 2017 22:01 Frá leik Indlands og Sri Lanka í dag. Leikmenn settu margir upp grímur vegna loftmengunar. Vísir/AFP
Gríðarleg loftmengun varð þess valdandi að leikmenn krikketliða Indlands og Sri Lanka þurftu ítrekað að stöðva leikinn til þess að kasta upp. Leikurinn fór fram í Delí, höfuðborg Indlands, í dag. Samkvæmt leiklýsendum er þetta í fyrsta sinn sem kappleikur milli landa er stöðvaður vegna mengunar í lofti, að því er fram kemur í frétt breska dagblaðsins Guardian. „Leikmenn fóru út af vellinum og ældu,“ sagði Nic Pothas, þjálfari krikketliðs Sri Lanka, við fréttamenn eftir leikinn. „Það voru súrefnishylki í búningsklefunum. Það er ekki eðlilegt að leikmenn þurfi að þjást á þennan hátt á meðan þeir eru að spila.“ Þá brugðu margir leikmenn á það ráð að setja upp grímur og spila leikinn með þær fyrir vitum sér. Loftmengun hefur rokið upp úr öllu valdi í Delí undanfarnar vikur. Læknar lýstu yfir neyðarástandi í borginni í síðasta mánuði þegar mengunarstig mældist langt yfir hættumörkum. Þá var loftmengunin talin á við það að reykja 50 sígarettur á dag. Delí er ein mengaðasta borg í heimi af völdum vegryks, opinna elda, útblásturs bifreiða og verksmiðja og bruna á afgangsuppskeru í nærliggjandi sveitum.
Indland Srí Lanka Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Nóg sé komið af Trump Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Fleiri fréttir Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Sjá meira