Gervigreind fann sólkerfi með átta reikistjörnur Samúel Karl Ólason skrifar 14. desember 2017 23:05 Kepler-sjónaukinn. Vísir/AFP
Geimvísindamenn hafa nú fundið átta reikistjörnur á braut um stjörnuna Kepler-90. Hingað til hefur eina sólkerfið með átta reikistjörnum verið okkar eigið. Reikistjörnurnar eru ekki talda geta stutt líf vegna nálægðar þeirra við sól sólkerfisins sem er í um 2.545 ljósára fjarlægð. Áður höfðu sjö reikistjörnur fundist í sólkerfinu með Kepler sjónauka Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna, NASA, en með aðstoð gervigreindar hefur sú áttunda nú fundist. Nýjasta reikistjarnan hefur fengið nafnið Kepler-90i og fer hún á braut um sólu sína á 14,4 dögum.Samkvæmt NASA er hitastigið á yfirborði Kepler-90i talið fara yfir 400 gráður. Reikistjarnan er um þriðjungi stærri en Jörðin.Reikistjarnan fannst með því að láta gervigreind Google fara yfir gögn úr Kepler-sjónaukanum. Gervigreindin fór yfir 35 þúsund möguleg merki um plánetur þar á meðal fann hún Kepler-90i. Þar að auki fann gervigreindin reikistjörnur í sólkerfinu Kepler-80.Samkvæmt AFP fréttaveitunni búast vísindamenn við því að fleiri reikistjörnur muni finnast en Kepler hefur safnað gögnum um rúmlega 150 þúsund stjörnur. Til stendur að keyra öll gögnin í gegnum gervigreind Google.
Vísindi Mest lesið Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Erlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Fleiri fréttir Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Sjá meira