Hlutkesti gæti ráðið úrslitum í kosningum í Virginíu Kjartan Kjartansson skrifar 20. desember 2017 23:13 Enn liggur ekki fyrir hvort að Shelly Simonds eða David Yancey hafi sigrað í einu kjördæma Virginíuríkis. Vísir/Getty
Útlit er fyrir að hlutkesti ráði úrslitum um hvort að repúblikanar halda meirihluta sínum í ríkisþingi Virginíu í Bandaríkjunum. Endurtalning hafði gefið demókrötum sigur með einu atkvæði en dómstóll hefur nú úrskurðað vafaatkvæði repúblikönum í vil. Gríðarlega mjótt var á mununum í 94. kjördæmi í kosningum til fulltrúadeildar ríkisþings Virginíu sem fóru fram 7. nóvember. Svo virtist sem að demókratinn Shelly Simonds hefði unnið sigur með einu atkvæði gegn repúblikananum David Yancey eftir endurtalningu. Þetta eina atkvæði hefði reynst afdrifaríkt því það hefði bundið enda á meirihluta repúblikana í deildinni sem þeir hafa haldið í sautján ár. Demókratar og repúblikanar hefðu verið með jafnmarga fulltrúa í deildinni. Dómstóll úrskurðaði hins vegar í dag að endurtalningin væri ógild. Þrír dómarar töldu að atkvæði sem úrskurðað hefði verið ógilt ætti að vera talið sem atkvæði fyrir Yancey þrátt fyrir að kjósandinn hefði merkt við báða frambjóðendur, að því er segir í frétt Washington Post. Það þýðir að repúblikanar og demókratar hlutu jafnmörg atkvæði. Ríkislög Virginíu kveða á um að kasta skuli upp um sigurvegara ef jafnt er. Formaður kjörstjórnar segir líklegast að nafn sigurvegarans verði dregið úr glerskál. Ekki liggur fyrir hvenær dregið verður um sigurvegara. Í millitíðinni halda repúblikanar eins manns meirihluta í fulltrúadeildinni.
Bandaríkin Mest lesið Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Noregur sökkar“ Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Fleiri fréttir „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Sjá meira