Dýrin þjást í hitabylgju í Ástralíu Kjartan Kjartansson skrifar 9. janúar 2018 09:52 Dýralífsstarfsmenn segja að hitinn hreinilega steiki heilann í leðurblökunum sem hafa drepist í hrönnum. Vísir/AFP
Gríðarlegur hiti hefur þjakað menn og málleysingja í Ástralíu undanfarna daga. Hundruð leðurblakna hafa drepist í hitanum og hundeigandi hefur verið ákærður fyrir dýraníð fyrir að skilja hundinn eftir í bíl. Hitinn náði 47,3°C í Sydney á sunnudag. Það var heitasti dagur í borginni frá árinu 1939, að því er segir í frétt breska ríkisútvarpsins BBC. Dýralífsstarfsmenn segja að hitinn leggist sérstaklega þungt á leðurblökur, fugla og pokarottur. Þeir hafa aðstoðað ungar leðurblökur í hitakófi og gefið þeim vatn. Einnig hafa þeir hjúkrað pokarottum sem hafa brennt sig á loppunum á heitum húsþökum og vegum og gefið fuglum vatn. „Alltaf þegar svona hitabylgjur ganga yfir vitum við að það verða mörg dýr nauðstödd,“ segir Kristie Harris frá Upplýsinga-, björgunar og menntunarþjónustu dýralífs í Nýja Suður-Wales. Þá var 28 ára gömul kona ákærð fyrir að skilja sjö vikna gamlan hvolp eftir í lokuðum bíl fyrir utan verslunarmiðstöð í hitanum. Lögreglumenn brutu rúðu í bílnum til að forða hvolpinum úr hitanum sem mældist 65°C. Hvolpinum var gefið vatn og hann færður í loftkældan lögreglubíl.
Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Nóg sé komið af Trump Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Fleiri fréttir Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Sjá meira