Vill afnema bann við fóstureyðingum á Írlandi Kjartan Kjartansson skrifar 28. janúar 2018 11:47 Stuðningsfólk réttinda kvenna til fóstureyðinga á Írlandi krefst þess að stjórnarskrárákvæði um réttindi fóstra verði afnumið. Vísir/AFP
Forsætisráðherra Írlands segist ætla að berjast fyrir því að bann við fóstureyðingum í landinu verði afnumið úr stjórnarskrá. Kröfur höfðu verið uppi um að ráðherrann gerði grein fyrir afstöðu sinni. Írska stjórnarskráin gefur fóstrum sama rétt til lífs og konunum sem ganga með þau. Dómstólar hafa túlkað ákvæðið sem bann við fóstureyðingum í nær öllum tilfellum, þar á meðal nauðgana, sifjaspells og fósturgalla. Stuðningur við afnám bannsins hefur farið vaxandi á meðal Íra síðustu árin. Í skoðanakönnun sem Irish Times birti í gær sögðust 56% fylgjandi því að afnema stjórnarskrárákvæðið og leyfa fóstureyðingar fram að tólftu viku meðgöngu. Meirihluta atkvæða í þjóðaratkvæðagreiðslu þarf til þess að breyta stjórnarskrá Írlands. Ríkisstjórn Leo Varadkar, forsætisráðherra, hefur lofað að halda slíka þjóðaratkvæðagreiðslu í ár, að því er segir í frétt New York Times. Persónulega afstaða Varadkar hefur ekki legið skýr fyrir. Hann hefur talað um að gera ætti löggjöfina frjálslyndari en þar til nú hefur hann neitað að segja hvort að hann myndi berjast fyrir afnámi stjórnarskrárákvæðisins. Í viðtali við breska ríkisútvarpið BBC í gær tók ráðherrann af öll tvímæli. „Ég ætla að berjast fyrir því að þeim verði breytt og gerð frjálslyndari, já,“ sagði Varadkar.
Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Innlent Fleiri fréttir Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Sjá meira