Lögregluþjónar borðuðu fíkniefni og kölluðu svo eftir hjálp lögreglu Samúel Karl Ólason skrifar 31. janúar 2018 13:57 Samkvæmt heimildum CTV News gruna rannsakendur að Dominelli og Young hafi stolið efnunum í áhlaupi á sölustað kannabisefna í Toronto. Vísir/GEtty
Tveimur lögregluþjónum í Toronto í Kanada hefur verið vikið úr starfi um tíma eftir að hafa borðað kannabisefni á vakt. Samkvæmt heimildum CTV News í Toronto voru mennirnir við umferðareftirlit aðfaranótt sunnudags þegar þeir borðuðu efnin. Skömmu seinna fóru þeir að sjá ofsjónir og yfirgaf annar þeirra bílinn.Hinn lögregluþjóninn brá þá á það ráð að kalla eftir hjálp annarra lögregluþjóna við að leita að félaga sínum. Lögregluþjónarnir tveir heita Vito Dominelli og Jamie Young. Þegar þriðji lögregluþjónninn kom á vettvang var annar félaganna kominn upp í tré og þurfti hann aðstoð við að komast niður. Lögregluþjónninn sem kom til aðstoðar rann þó til á ís, skall með höfuðið í jörðina og fékk heilahristing. Samkvæmt heimildum CTV News gruna rannsakendur að Dominelli og Young hafi stolið efnunum í áhlaupi á sölustað kannabisefna í Toronto. Dominelli er þekktur í borginni fyrir að vera virkur á samfélagsmiðlum. Hann hefur reglulega birt myndbönd af sér þar sem hann hefur verið að dansa eða syngja með lögum í lögreglubúningi sínum.
Kanada Mest lesið Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Vilja hækka samræðisaldur Innlent Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Erlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Fleiri fréttir Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Sjá meira