Nýnasisti einn í framboði hjá repúblikönum í Illinois Kjartan Kjartansson skrifar 5. febrúar 2018 12:19 Kjördæmið sem Jones býður sig fram í nær meðal annars yfir hluta Chicago-borgar. Vísir/Getty
Eini frambjóðandinn í forvali Repúblikanaflokksins í einu kjördæma Illinois-ríkis fyrir þingkosningarnar í haust er nýnasisti sem lýsir helförinni sem „stærstu og svörtustu lygi sögunnar“. Formaður repúblikana í Illinois fordæmir frambjóðandann sem verður engu að síður að líkindum sjálfkjörinn. Þriðja kjördæmi Illinois fyrir þingkosningarnar nær meðal annars yfir hluta Chicago-borgar og nokkur úthverfi hennar. Arthur Jones er sá eini sem hefur boðið sig fram í forvali repúblikana en frestur til að tilkynna um framboð rann út í desember. Á vefsíðu sinni hampar Jones fána Suðurríkjanna sem hann lýsir sem tákni um stolt hvíts fólks og andspyrnu þess. Chicago Sun-Times segir að Jones hafi tilheyrt flokki nýnasista og lýsir honum sem gyðingahatara og hvítum þjóðernissinna. „Í fyrsta lagi þá er ég að bjóða mig fram til þings, ekki til kanslara Þýskalands. Allt í lagi. Fyrir mér er helförin það sem ég hef sagt: hún er alþjóðleg fjárkúgunarsvikamylla,“ segir Jones við blaðið.Stilltu ekki upp frambærilegum frambjóðandaEngar líkur eru á því að Jones vinni sigur í sjálfum þingkosningunum en demókratar eru í meirihluta í kjördæminu, að því er segir í frétt Washington Post. Það er raunar ástæðan fyrir því að Jones er einn í framboði. Sigur demókrata í kjördæminu er talinn svo öruggur að flokkurinn hafði ekki fyrir því að finna vænlegan frambjóðanda. Framboð Jones er engu að síður vandræðalegt fyrir Repúblikanaflokkinn. Í yfirlýsingu við Chicago Sun-Times fordæmir Tim Schneider, formaður stjórnar flokksins í Illinois, frambjóðandann. „Repúblikanaflokkur Illinois og landið okkar á engan stað fyrir nasista eins og Arthur Jones. Við erum algerlega á móti rasískum skoðunum hans og framboði hans til opinbers embættis, þar á meðal í þriðja kjördæmi,“ segir Schneider.
Bandaríkin Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Nóg sé komið af Trump Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Fleiri fréttir Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Sjá meira