Yfirmaður lýðheilsumála sagði af sér vegna hlutabréfakaupa í tóbaksfyrirtæki Kjartan Kjartansson skrifar 1. febrúar 2018 11:45 Með því að kaupa hlutabréf í tóbaksfyrirtæki skapaði Fitzgerald (t.h.) hagsmunaárekstra í nýju starfi sínu sem forstöðumaður Heilsuverndarstofnunar Bandaríkjanna. Vísir/AFP
Brenda Fitzgerald, forstöðumaður Heilsuverndarstofnunar Bandaríkjanna, sagði af sér vegna hagsmunaárekstra í gær. Hún hafði legið undir gagnrýni eftir að í ljós kom að hún keypti hlutabréf í tóbaksfyrirtæki þegar hún var nýtekin við embættinu. Talsmaður heilbrigðisráðuneytis Bandaríkjanna segir að með hlutabréfakaupunum hafi Fitzgerald skapað hagsmunaárekstra sem takmörkuðu getu hennar til að uppfylla skyldur sínar sem forstöðumaður Heilsuverndarstofunarinnar [e. Centers for Disease Control and Prevention]. Afsögn Fitzgerald kom í kjölfar umfjöllunar bandaríska blaðsins Politico um hlutabréfakaup hennar þegar hún hafði gegnt embættinu í mánuð. Fitzgerald tók við því í júlí en hún hefur lengi barist gegn tóbaksnotkun sem er orsök fjölda ótímabærra dauðsfalla í Bandaríkjunum og um allan heim. Alex Azar, heilbrigðisráðherra Bandaríkjanna, féllst á afsögn Fitzgerald. Hann er tók sjálfur við embætti sínu fyrir aðeins þremur dögum. Forveri hans, Tom Price, sagði af sér eftir að sama dagblað uppljóstraði um notkun hans á einkaþotum í opinberum erindagjörðum.
Mest lesið Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Hló að svari sambýliskonunnar Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Sjá meira