Haukar náðu fram hefndum gegn Fram Anton Ingi Leifsson skrifar 14. mars 2018 21:14 Berta hefur verið frábær í vetur. vísir/anton
Haukar hefndu fyrir bikartapið gegn Fram um helgina er þær unnu Fram í leik liðanna í Olís-deild kvenna í kvöld, en leikið var á Ásvöllum. Lokatölur 25-21, en ein umferð er eftir af deildinni og mikil spenna hvernig úrslitakeppnin raðast niður. Haukar voru sterkari aðilinn nær allan leikinn og voru 14-10 yfir í hálfleik. Þær unnu svo að lokum fjögurra marka sigur, en sigurinn fleytir Haukum upp í annað sæti deildarinnar. Haukar, Fram og ÍBV eru öll með 20 stig í öðru til fjórða sætinu. Berta Rut Harðardóttir heldur áfram að eiga skínandi gott tímabil hjá Haukum, en hún skoraði átta mörk í kvöld. Næst kom Karen Helga Díönudóttir með fimm mörk. Ragnheiður Júlíusdóttir skoraði sjö fyrir bikarmeistarana í Fram. Valur rúllaði yfir Gróttu á heimavelli 30-18 eftir að hafa leitt 18-6 í hálfleik. Valur er á toppnum með 32 stig, á meðan Grótta á botninum með fjögur stig. Selfoss tapaði nokkuð óvænt gegn Fjölni á heimavelli, 24-21. Fjölnir leiddi í hálfleik 13-11, en Fjölnir er í næst neðsta sæti með sex stig á meðan Selfoss er sæti ofar með níu stig. Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir gerði átta mörk fyrir Selfoss og Perla Ruth Albertsdóttir sjö. Hjá Fjölni var Andrea Jacobsen markahæst með níu, en Berglind Benediktsdóttir og Díana Ágústsdóttir skoruðu fjögur hvor.
Olís-deild kvenna Mest lesið Yamal sagði frá því hvað hann sagði við Messi Fótbolti Liðalaus Stones eftirsóttur Fótbolti Skoraði tvennu þrátt fyrir fjólubláan fót: „Hefðum kannski átt að refsa þeim meira“ Fótbolti Orðin hans Gavi gerðu Paredes alveg snaróðan eftir úrslitaleikinn Fótbolti Anderson sendir Nottingham Forest kveðju Fótbolti Uppgjörið: Víkingur - Beer Sheva 2-1 | Nikolaj gerði aftur útslagið Fótbolti „Tek fyrri hálfleikinn á mig“ Fótbolti Gagnrýnir harðlega „tilefnislausar samsæriskenningar“ Fótbolti Hversu heitt er sætið hans Lárusar Orra? Sport Óskar Smári Haraldsson: „Margt í okkar leik sem var ekki í lagi“ Fótbolti Fleiri fréttir Unnu síðustu tvo leikina með samtals 25 marka mun Önnum kafinn Arnór óskar Benedikt góðs bata Ungu strákarnir okkar rúlluðu yfir Ísrael Ljóst hvaða lið bíða Vals og FH í breyttri Evrópudeild Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Sjá meira