Lögreglumenn sem drápu óvopnaðan blökkumann sleppa við ákæru Kjartan Kjartansson skrifar 27. mars 2018 15:58 Til mótmæla kom í Baton Rouge eftir dauða Sterling sumarið 2016. Vísir/AFP
Saksóknarar í Lúisíana í Bandaríkjunum hafa ákveðið að ákæra ekki tvo lögreglumenn sem áttu þátt í að Alton Sterling var skotinn til bana árið 2016. Mál Sterling hratt af stað hörðum mótmælum en það var eitt nokkurra þar sem lögreglumenn skutu óvopnaða blökkumenn til bana. Sterling var drepinn í júlí árið 2016. Tveir lögreglumenn sem sinntu útkalli um manns sem væri að ógna fólki með byssu stöðvuðu hann þar sem hann var að selja geisladiska fyrir utan kjörbúð í bænum Baton Rouge, héldu honum niðri og skutu hann til bana. Hann var 37 ára gamall. Dauði Sterling átti sér stað þegar mikið reiðualda gekk um Bandaríkin vegna fjölda atvika þar sem lögreglumenn, í mörgum tilfellum hvítir, skutu óvopnaða blökkumenn til bana. Mikil mótmæli brutust út vegna máls Sterling og fleiri fórnarlamba lögreglumanna. Bandaríska dómsmálaráðuneytið ákvað að gefa ekki út alríkisákæru gegn lögreglumönnunum í fyrra á þeim forsendum að ekki væru nægilegar sannanir fyrir því að þeir hefðu brotið gegn borgararéttindum Sterling. Strangar kröfur eru fyrir slíkum ákærum í bandarískum lögum og verður að sýna fram á ásetning af hálfu lögreglumanna. Í kjölfarið hófu saksóknarar Lúisíanaríkis rannsókn. Þeir hafa nú komist að því að ekki sé ástæða til að ákæra lögreglumennina tvo, að því er segir í frétt Washington Post. Lögmaður fjölskyldu Sterling segir að saksóknarar hafi þó getað veitt frekari upplýsingar um hvernig dauða hans bar að. Þannig hafi annar lögreglumannanna beint byssu sinni að höfði Sterling og sagt við hann: „Ég drep þig, tík“.
Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Vilja hækka samræðisaldur Innlent Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Erlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Fleiri fréttir Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Sjá meira