Tæknirisar takast á Hulda Hólmkelsdóttir skrifar 2. apríl 2018 23:00 Tim Cook, forstjóri Apple, og Mark Zuckerberg, forstjóri Facebook. Vísir/Getty
Mark Zuckerberg, forstjóri og stofnandi Facebook, segir það rangt að Facebook sé sama um notendur sína þó þeir borgi ekki fyrir þjónustuna. Var þetta svar við orðum sem Tim Cook, forstjóri Apple, lét falla í síðustu viku. Cook sagði að það væri skerðing á friðhelgi einkalífsins að selja upplýsingar um einkalíf notenda. Aðspurður um hvað hann myndi gera væri hann Zuckerberg var svarið einfalt: „Ég myndi ekki vera í þessari stöðu.“ Facebook hefur mátt þola mikla gagnrýni upp á síðkastið eftir að í ljós kom að Cambridge Analytica, breskt greiningarfyrirtæki sem vann fyrir forsetaframboð Donalds Trump árið 2016, hafi komist yfir upplýsingar um fimmtíu milljónir notenda Facebook með óheimilum hætti. Svo virðist sem Facebook hafi vitað af svikunum frá árinu 2015 en ekki gengið á eftir því að gögnunum yrði eytt þar til erlendir fjölmiðlar bjuggu sig undir að birta umfjallanir um gögnin um miðjan mars á þessu ári. Tim Cook hefur tvisvar tjáð sig opinberlega um málið. „Ég tel að þetta tiltekna mál sé svo slæmt og stórt að líklega er þörf á einhverri vel ígrundaðri reglugerð,“ sagði Cook til að mynda á ráðstefnu í Peking þann 23. Mars. „Að einhver geti vitað hvað þú hefur skoðað svo árum skiptir, hverjir þínir tengiliðir eru og hverjir tengiliðir þeiorra eru, hvað þér líkar eða mislíkar og öll smáatriði um líf þitt. Frá mínum bæjardyrum séð ætti það ekki að vera hægt.“Einkalíf mannréttindi Fimm dögum seinna, þann 28. mars var Cook aftur spurður út í málið í viðtali við MSNBC og Recode. „Ég tel að bestu reglugerðirnar séu engar reglugerðir og sjálfskipaðar reglugerðir. Hins vegar tel ég að það dugi ekki í þessu tilviki,“ sagði hann þá. „Við gætum grætt helling af peningum ef við gerðum gjaldmiðla úr notendum okkar, ef viðskiptavinir okkar væru vara. Við höfum valið að gera það ekki...Einkalíf er mannréttindi.“ Hagnað Apple má að mestu rekja til sölu á snjallsímum og spjaldtölvum og öðrum tölvubúnaði auk þess sem fyrirtækið býður viðskiptavinum upp á að geyma efni á vefnum. Hin stærstu tæknifyrirtækin, til dæmis Google, Twitter og Facebook sækja mestan hagnað sinn í auglýsingar sem sérsniðnar eru að notendum.Mikilvægt að notendur fái ekki Stokkhólms heilkenni Zuckerberg hefur áður sagt að hann sé opinn fyrir nýjum reglugerðum eftir Cambridge Analytica skandalinn. Hann segir það þó fjarri sanni að Facebook sé sama um notendur, þó að fyrirtækið styðjist að mestu leyti við auglýsingatekjur. „Mér finnst þau rök, að ef þú ert ekki að borga einhverjum að þá sé okkur einhvern veginn sama um þig, mér finnst þau ekki halda vatni,“ sagði hann. „Sannleikurinn er sá að ef þú vilt bjóða upp á þjónustu sem er aðgengileg öllum í heiminum þá eru margir sem hafa ekki efni á að borga.“ „Mér finnst mikilvægt að við fáum ekki öll Stokkhólms heilkenni og förum að leyfa fyrirtækjum sem rukka meira að sannfæra okkur um að þeim sé meira annt um þig, því það hljómar furðulega að mínu mati.“
Apple Facebook Tengdar fréttir Facebook kynnir breytingar á gagnavernd Facebook kynnti í dag ýmsar nýjunar á samfélagsmiðlinum sem eiga að auðvelda notendum hans að sjá og ná í gögn sem miðillinn hefur um þá. 28. mars 2018 12:15 Zuckerberg mislíkar minnisblað varaforseta Forstjóri Facebook segist ósammála umdeildu minnisblaði eins varaforseta fyrirtækisins. Þar var því haldið fram að tilgangurinn helgaði meðalið. Vafasamir viðskiptahættir væru í lagi svo lengi sem þeir stuðluðu að vexti Facebook. 31. mars 2018 09:45 Stofnandi Facebook gengst við mistökum og lofar að vernda gögn notenda Mark Zuckerberg rýfur þögnina um Cambridge Analytica í færslu á Facebook. 21. mars 2018 20:45 Stofnandi Facebook ætlar að svara bandarískri þingnefnd en ekki breskri Bresku þingmönnunum líkar örugglega ekki við að Zuckerberg vilji ekki deila stöðuuppfærslu um Cambridge Analytica með þeim. 27. mars 2018 15:15 Greiningarfyrirtæki tengt Trump hnuplaði gögnum um milljónir Fyrirtækinu Cambridge Analytica hefur verið vísað af Facebook og eru sakaðir um að hafa notað persónugögn milljóna manna í pólitískum tilgangi. 17. mars 2018 20:45 Mest lesið Skuldar félagi Einars 44 milljónir og gæti misst 295 milljóna hús Viðskipti innlent Fegurð er glæpur kom út í mínus Viðskipti innlent Segir engar breytingar hafa verið gerðar á uppskrift SS pylsna Neytendur Fleiri leigi nú af vinum og ættingjum Viðskipti innlent Atvinnumissir: „Ég kunni nú ekki við að spyrja Jón beint“ Atvinnulíf Sjúkratryggingar grunaðar um ríkisaðstoð Viðskipti innlent „Alls konar fólk heyrt í mér um alls konar hluti“ Viðskipti innlent Stórfyrirtæki hyggja á uppbyggingu á Hólmsheiði Viðskipti innlent Sparar kylfingum tíma með rástímaleitarsíðu Viðskipti innlent Útlit fyrir frekari verðhækkanir á kaffimarkaði Neytendur Fleiri fréttir Stýrivextir lækkaðir í Bandaríkjunum í fyrsta sinn í fjögur ár Tupperware lýsir yfir gjaldþroti Snúa við dómnum og dæma Bonnesen í fangelsi Gera Apple að greiða tvær billjónir í skatta Skaut samstundis niður tillögur um efnahagslega björgun Evrópu Bein útsending: Apple kynnir nýjustu græjurnar Hætta steðjar að lífsgæðum Evrópubúa Volvo heykist á algjörri rafvæðingu árið 2030 Þessari rafmagnsflugvél er ætlað að flytja 90 farþega Zuckerberg harmar að hafa látið undan þrýstingi Bidens Breska stjórnin samþykkir að efla London City-flugvöll Sádar sagðir byrjaðir að skrúfa fyrir kranann Susan Wojcicki er látin Ummæli Trump vekja áhyggjur af sjálfstæði seðlabanka Hlutabréfin ruku aftur upp degi eftir hrun Google beið lægri hlut í risavöxnu einokunarmáli Hrun í hlutabréfamörkuðum ytra Sjá meira
Facebook kynnir breytingar á gagnavernd Facebook kynnti í dag ýmsar nýjunar á samfélagsmiðlinum sem eiga að auðvelda notendum hans að sjá og ná í gögn sem miðillinn hefur um þá. 28. mars 2018 12:15
Zuckerberg mislíkar minnisblað varaforseta Forstjóri Facebook segist ósammála umdeildu minnisblaði eins varaforseta fyrirtækisins. Þar var því haldið fram að tilgangurinn helgaði meðalið. Vafasamir viðskiptahættir væru í lagi svo lengi sem þeir stuðluðu að vexti Facebook. 31. mars 2018 09:45
Stofnandi Facebook gengst við mistökum og lofar að vernda gögn notenda Mark Zuckerberg rýfur þögnina um Cambridge Analytica í færslu á Facebook. 21. mars 2018 20:45
Stofnandi Facebook ætlar að svara bandarískri þingnefnd en ekki breskri Bresku þingmönnunum líkar örugglega ekki við að Zuckerberg vilji ekki deila stöðuuppfærslu um Cambridge Analytica með þeim. 27. mars 2018 15:15
Greiningarfyrirtæki tengt Trump hnuplaði gögnum um milljónir Fyrirtækinu Cambridge Analytica hefur verið vísað af Facebook og eru sakaðir um að hafa notað persónugögn milljóna manna í pólitískum tilgangi. 17. mars 2018 20:45