Handtekinn vegna morðsins á þýskri stúlku Andri Eysteinsson skrifar 9. júní 2018 22:04 Ali Bashar var handtekinn í Írak, grunaður um morðið á Susönnu Feldman. Vísir/EPA
Íraskur hælisleitandi, Ali Bashar, sem flúði Þýskaland eftir að unglingsstúlka fannst myrt hefur verið handtekinn í heimalandi sínu en þetta kemur fram á vef BBC. Hinn tvítugi Bashar var handtekinn af lögreglu á heimaslóðum hans í Duhok héraði eftir að þýsk yfirvöld höfðu óskað eftir aðstoð. Bashar flúði Þýskaland eftir að lík hinnar 14 ára gömlu Susönnu Feldman frá Mainz fannst við lestarteina í útjaðri borgarinnar Wiesbaden. Þýska lögreglan hefur gefið það út að stúlkunni hefði verið nauðgað og er talið að hún hafi verið kyrkt. Írösk og Þýsk yfirvöld hafa gefið það út að Ali Bashar verði framseldur til Þýskalands og að réttað verði yfir honum þar. Í yfirlýsingu sinni sagðist innanríkisráðherra Þýskalands, Horst Seehofer, vera hæstánægður með að hinn grunaði yrði leiddur fyrir þýskan dómstól. Mikil reiði greip um sig í Þýskalandi þegar yfirvöld gáfu út að Bashar hafði tekist að flýja land ásamt fjölskyldu sinni. Málið hefur endurvakið gagnrýni á stefnum Angelu Merkel, kanslara Þýskalands, í innflytjendamálum. Stjórnendur öfga-hægri flokksins (AfD) hafa kallað eftir afsögn Merkel í kjölfar málsins.
Erlent Mest lesið „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Innlent Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Innlent Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Innlent „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hafnað með afgerandi hætti Erlent „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Innlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Erlent Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Innlent Fleiri fréttir Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Sjá meira