Hætta að dæma keppendur Miss America eftir útliti Samúel Karl Ólason skrifar 5. júní 2018 15:30 Frá keppninni árið 2015. Vísir/AP
Forsvarsmenn fegurðarsamkeppninnar fyrrverandi Miss America segja að hætt hafi verið við sundfatahluta keppninnar og að hætt verði að dæma keppendur eftir útliti þeirra. Í stað þess að stíga á svið í sundfötum og háum hælum munu keppendur nú mæta dómurum keppninnar og ræða við þá um afrek þeirra og hvernig þær vilja nota hæfileika sína og ástríðu til að vinna að markmiðum Miss America. Gretchen Carlson, formaður stjórnar Miss America samtakanna, tilkynnti breytingarnar í sjónvarpsviðtali í morgun. Þar sagði hún að ekki væri lengur um fegurðarsamkeppni að ræða. Miss America væri nú bara keppni. „Við munum ekki lengur dæma keppendur okkar á líkamlegu útliti þeirra. Það er stórt og það þýðir að við munum ekki lengur vera með sundfatakeppni og það verður klárt þann 9. september í keppninni okkar í Atlantic City,“ sagði Carlson. Stjórnendur Miss America sögðu af sér í desember eftir að tölvupóstsamskipti þeirra rötuðu í fjölmiðla. Þar höfðu þeir talað um fyrrverandi fegurðardrottningar með niðrandi hætti. Meðal annars ræddu þeir um holdafar þeirra og gáfu í skyn að þær væru lauslátar.Sjá einnig: Framkvæmdastjórinn hæddi og smánaði fegurðardrottningar Nú eru konur í þremur æðstu stöðum samtakanna. Carlson segir að einnig standi til að gera breytingar á kjólahluta keppninnar en ekki liggur fyrir hvernig þær breytingar verða. Regina Hopper, forstjóri samtakanna, segir að nýja markmið keppninnar verði að undirbúa stórkostlegar konur fyrir heiminn og að undirbúa heiminn fyrir stórkostlegar konur. „Við viljum að fleiri ungar konur sjái Miss America sem tækifæri sem þær geta notað til að hafa áhrif og við viljum veita þeim þá nauðsynlegu hæfileika og aðföng sem þær þurfa til að slá í gegn á þeirri framabraut sem þær velja.“
Bandaríkin Mest lesið Þorgerður beygði af í Bítinu Innlent Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Erlent Nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Innlent Mættu í skólann og beittu nemanda ofbeldi Innlent Haraldur V Noregskonungur er látinn Erlent „Verkinu er haldið í gíslingu“ Innlent Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Innlent „Mér fannst ég þekkja hann strax og ég hitti hann í fyrsta sinn“ Innlent Fleiri fréttir Kalla bandaríska sendiherrann á teppið vegna svívirðinga um ráðherra Hver er Hákon VIII Noregskonungur? Sagður hafa logið árum saman um morðið á Tupac Er sagður hafa lagt spilin á borðið varðandi Úkraínu Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Haraldur V Noregskonungur er látinn Breytti heiti Ontaríó-vatns í Ameríku-vatn Óttast fleiri flóð vegna skriða í fjöllunum Ljúka greiningu á viðveru í Evrópu fyrr en til stóð „Slátrarinn í Bosníu“ Ratko Mladic látinn Rísandi stjarna AfD umkringd nýnasistum Staðgöngumóðir eignast „tvíbura“ með sitthvora foreldrana Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Heilsu Haraldar hrakar enn Að minnsta kosti 165 eru látnir og yfir 1.500 saknað Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára illdeilur Eiginmaður Mörtu Noregsprinsessu fékk nýtt nýra Erlendir fjölmiðlar beina sjónum að þjóðaratkvæðagreiðslunni Carney verður viðstaddur stefnuræðu ESB-forseta Hundraða saknað eftir stærðarinnar skyndiflóð Myrti foreldra sína, ömmu, systur og fjögur börn Fjórtán nýburar dóu í eldsvoða á fæðingardeild Stjórnvöld í Íran hyggjast banna samskipti við erlenda miðla Maxwell fær ekki dómnum hnekkt Mynd af sverði birt um hálftíma fyrir morðið Móðirin sem Bandaríkjamenn deila um Yfirmaður CIA í Moskvu Hvirfilbylur olli usla í sunnanverðu Frakklandi Sjá meira