Minnst 17 menn nauðguðu tólf ára stúlku ítrekað Samúel Karl Ólason skrifar 19. júlí 2018 22:45 Árið 2016 voru tilkynntar rúmlega hundrað nauðganir á degi hverjum í Indlandi. Vísir/AP
Minnst sautján menn hafa verið ákærðir í borginni Chennai í Indlandi fyrir að hafa ítrekað nauðgað tólf ára stúlku á sjö mánaða tímabili. Mennirnir eru sagðir hafa tekið upp nauðganir og hótað því að birta myndbönd á netinu. Sömuleiðis hótuðu þeir að beita stúlkuna ofbeldi, segði hún frá nauðgununum. Stúlkan mun hafa sagt lögreglunni að 66 ára gamall maður sem vann við að stýra lyftu fjölbýlishússins sem hún býr í hafi byrlað henni ólyfjan og nauðgað henni. Þremur dögum seinna hafi hann snúið aftur með fleiri mönnum sem hafi einnig nauðgað henni og á áðurnefndu tímabili hafi mönnunum sífellt fjölgað. Fréttum ytra ber ekki saman um fjölda manna sem hafa verið ákærðir. Guardian segir þá vera sautján en Times of India segir átján hafa verið handtekna og fjögurra sé enn leitað. Þá eru sömuleiðis miðlar sem segja stúlkuna vera ellefu ára.Stúlkan mun þó hafa verið færð á sjúkrahús á sunnudaginn eftir hún sagði systur sinni frá ofbeldinu. Mennirnir voru handteknir á mánudaginn og ákærðir fyrir nauðgun, morðtilraun og hótanir. Samtök lögmanna í héraðinu hafa tilkynnt að engir lögmenn munu koma mönnunum til varnar. Þetta er í fyrsta sinn sem samtökin grípa til slíkra aðgerða. Þegar þeir voru fluttir fyrir dómara veittist hópur fólks að þeim, eins og sjá má á meðfylgjandi myndbandi.#WATCH: Dramatic visuals from Mahila Court in Chennai where lawyers thrash the 18 accused, who sexually harassed an 11-year-old girl for over a period of 7 months. #TamilNadupic.twitter.com/8ASDOlm7gW — ANI (@ANI) July 17, 2018 Árið 2016 voru tilkynntar rúmlega hundrað nauðganir á degi hverjum í Indlandi. Af hverjum hundrað tilfellum var í sex skipti um nauðganir á stúlkum undir tólf ára aldri að ræða. Í janúar var átta ára stúlku rænt og var henni nauðgað í fimm daga áður en hún var barin til dauða með grjóti. það leiddi til lagasetningar varðandi dauðadóma fyrir það að nauðga börnum undir tólf ára aldri.
Mest lesið Draumurinn að rætast fyrir Demókrata Erlent Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Reynslumikill flugmaður við stjórnina Erlent Segir af sér vegna lestarslysa Erlent „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Innlent Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Innlent Fleiri fréttir Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumurinn að rætast fyrir Demókrata Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Sjá meira