Fékk hjartaáfall og lést er farþegaflugvél hafnaði utan flugbrautar Kristín Ólafsdóttir skrifar 1. september 2018 09:31 Flugvél rússneska flugfélagsins UTair af gerðinni Boeing 737-500. Vísir/EPA
Flugvallarstarfsmaður fékk hjartaáfall og lést við björgunaraðgerðir þegar farþegaflugvél rann út af flugbraut á flugvelli í rússnesku borginni Sochi snemma í morgun. Átján slösuðust er vélin hafnaði utan brautarinnar. 164 farþegar auk sex manna áhafnar voru um borð í flugvélinni, sem var á leið frá Moskvu á vegum flugfélagsins Utair og af gerðinni Boeing 737. Í myndböndum af vettvangi sést hvernig kviknaði í flugvélinni eftir brotlendinguna en hún rann út af flugbrautinni við lendingu, fór í gegnum grindverk á flugvellinum og hafnaði úti í á. Hinir slösuðu hlutu brunasár og aðrir kolmónoxíðeitrun. Þrjú börn eru á meðal hinna slösuðu. Búið er að slökkva eldinn sem logaði í flaki vélarinnar. Samkvæmt upplýsingum frá yfirvöldum í Rússlandi verður slysið rannsakað vegna gruns um ófullnægjandi þjónustu flugfélagsins, sem hafi stefnt viðskiptavinum í hætti.
Rússland Mest lesið Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Innlent Hættu við ADHD-greiningu vegna vímuefnaneyslu barnsins Innlent Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Innlent Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Innlent Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Innlent Stolinn bíll fannst úti í á Innlent Tek mark á því að þetta sé fallegasta hús Íslands Innlent „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Erlent Allt gert til að stöðva birtinguna Innlent Þrjátíu börn getin á frjósemisstofu með óþekktum kynfrumum Erlent Fleiri fréttir „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Grunnþjálfun hermannanna fer öll fram á Grænlandi Þrjátíu börn getin á frjósemisstofu með óþekktum kynfrumum Enginn árangur af fundi Kushner og Netanyahu Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Haraldur konungur lagður inn á spítala Átti í samskiptum við eftirhermu starfsmannastjóra Hvíta hússins Yfirheyra bandamenn sína í NATO Ellefu ára fangelsi fyrir að mótmæla stríði Pútíns „Ef Óman þvælist fyrir, sprengjum við þá í tætlur" Réttarhöldin gegn Murdaugh færð, fari þau yfir höfuð fram Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Trump tekur sér stöðu með Norður-Kóreu gegn Suður-Kóreu Hæsta stytta Evrópu af Maríu mey afhjúpuð Úkraína gæti átt heimasmíðaðar skotflaugar innan nokkurra mánaða Kushner mættur til Ísrael Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Eldflaugum og drónum rignir yfir Kænugarð og Moskvu Tólf látnir eftir að ferðamannarúta hafnaði í skurði Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Fagnað á götum Kabúl Fannst hann ekki geta haldið áfram Bætist í tölu látinna Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Hótar að gera Hormússundið að bandarísku yfirráðasvæði Tugir látnir eftir stóran jarðskjálfta Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Önnur lestin af sporinu á innan við sólarhring Mangione játar sök: „Ég skaut herra Thompson og hann lést“ Sjá meira