Skoðun

Mörk sannleikans

Helgi Þorláksson skrifar
Þrír heiðursborgarar Reykjavíkur gengu á fund borgarstjóra og formanns borgarráðs á þriðjudaginn 25.9. og skoruðu á þau að láta hætta við áformaða hótelbyggingu í Víkurgarði, hinum gamla garði Reykjavíkurkirkju. Haft er eftir borgarstjóra í Fréttablaðinu á miðvikudag 26.9. að byggingin „fari ekki inn í gamla kirkjugarðinn“.

Hafa heiðursborgararnir misskilið málið algjörlega? Eða kýs borgarstjóri að hagræða sannleikanum? Skýring kemur kannski fram í ummælum formanns borgarráðs: „Borgin metur það sem svo að ekki sé verið að byggja ofan á sjálfum garðinum heldur á bílastæði sem var fyrir framan Landssímahúsið.“

Á þessum tilgreinda stað við Kirkjustræti var grafið á útmánuðum 2016. Auk rofinna grafa fundust þarna tveir tugir af heillegum kistum með heillegum beinagrindum og var allt flutt brott til að rýma fyrir hóteli. Var þetta ekki gamli kirkjugarðurinn? Jú, auðvitað, hann náði allmiklu austar en núverandi Fógetagarður, langleiðina að Austurvelli.

Forkólfar borgarinnar glíma við þann vanda að deiliskipulag frá 1988 leyfir byggingu þarna. En það byggist einfaldlega á vanþekkingu sem veldur kannski þessum feluleik þeirra. Árið 1967 lá fyrir eins skýrt og gat orðið að kirkjugarðurinn stóð líka þar sem viðbygging Landssímahússins var reist, sú sem var brotin niður í sumar. Í febrúar 1967 komu þar í ljós sex grafir og voru þar jarðneskar leifar fólks og leifar fimm kistna. Á einni þeirra stóð að þar væri grafin Margrét Pétursdóttir sem dó 1829. Hún á mikinn fjölda afkomenda. Árið 1967 var á vitorði fólks almennt að leg Margrétar var í gamla kirkjugarðinum af því að enn 1966 var þarna rétt hjá legsteinn á gröf og hermdi að þar hefði verið jarðsett 1882 og 1883. Í traustum heimildum frá 1882 segja stiftsyfirvöld og dómkirkjuprestur að þessi legstaður sé í „gamla kirkjugarðinum“. Á fjórða áratug síðustu aldar höfðu verið þarna nærri nokkur minningarmörk á gröfum en voru flutt.

Gröfum var hlíft þarna 1967 og eru rök til að halda að þær geymi enn jarðneskar leifar fólks. Kristjáni Eldjárn taldist til, þegar hann var þjóðminjavörður, að bygging sem óskað var eftir að reisa 1965, þar sem hótelið skal reist núna, tæki yfir h.u.b. 360 fermetra hins gamla kirkjugarðs, eða fimmtung hans a.m.k. Kristján barðist af þunga gegn þessum áformum og ríkisstjórnin lét hætta við þau 1965. Enn geta borgarstjórn, ráðherra og Kirkjugarðaráð komið í veg fyrir nýbyggingar á reitnum.




Skoðun

Sjá meira


×