Uppgjör: Besta tímabil Hamilton frá upphafi Bragi Þórðarson skrifar 29. nóvember 2018 18:00 Hamilton er besti ökuþór þessarar kynslóðar vísir/getty
Lewis Hamilton endaði sem öruggur heimsmeistari í Formúlu 1 þetta árið, forskot hans á Sebastian Vettel endaði í 88 stigum. Þessir tveir ökumenn komu inn í tímabilið báðir með fjóra heimsmeistaratitla. Því var svo sannarlega um að ræða baráttu um að verða besti ökumaður þessarar kynslóðar. Tímabilið var langt frá því að vera auðvelt fyrir Hamilton og Mercedes því það voru Vettel og Ferrari sem byrjuðu betur. Vettel kom fyrstur í mark á undan Hamilton í fyrstu keppninni í Ástralíu. Í byrjun tímabils leit út fyrir að Ferrari hafi gert heimalærdóminn betur og voru rauðu bílarnir þeir hröðustu á brautinni. Eftir breska kappaksturinn hafði Sebastian 8 stiga forskot á Lewis. En segja má að í Þýskalands kappakstrinum hefðu lukkudísirnar yfirgefið Vettel.Þjóðverjinn var ekki nógu stöðugur á fæti á tímabilinu og föllin of mörgvísir/gettyMistökin sem kostuðu Vettel titilinnÞjóðverjinn var með tæplega 10 sekúndna forustu þegar aðeins 15 hringir voru eftir af heimakeppni hans í júlí. Það var byrjað að rigna og Þjóðverjinn missti stjórn á Ferrari bíl sínum á sleipri brautinni. Fyrir vikið varð Vettel frá að hverfa á meðan Hamilton keyrði sig upp í fyrsta sætið þrátt fyrir að hafa byrjað kappaksturinn fjórtándi. Eftir atvikið á Hockenheim brautinni virtist eitthvað hafa hrunið andlega hjá Vettel. Þjóðverjinn vann aðeins eina keppni eftir það og Hamilton náði að tryggja sér titilinn með tvær keppnir eftir.Hamilton kom, sá og sigraði í Singapúrvísir/gettyFrábært tímabil hjá HamiltonÞað voru þó ekki bara mistök Vettel og Ferrari sem tryggðu Hamilton og Mercedes titlana. „Þetta er búið að vera besta tímabil mitt til þessa,“ sagði Bretinn í viðtali við BBC eftir mexíkóska kappaksturinn. Lewis var mun stöðugari en Sebastian í sumar, auk þess var það Mercedes sem sjaldnar gerði taktísk mistök. Tími Hamilton í tímatökunum í Singapúr var eitt af mörgum atvikum sem sönnuðu að Lewis er verðugur fimmfaldur meistari. Mercedes bíllinn hefur aldrei staðið sig vel á Singapúr brautinni og stefndi allt í öruggan sigur Ferrari eða Red Bull. Þá gerði Lewis sér lítið fyrir og náði hreint út sagt mögnuðum árangri í tímatökunum og ræsti því fyrstur. Hamilton vann kappaksturinn og setti síðasta naglan í líkkistu Vettel.Tekur lærisveinninn fram úr þeim besta?vísir/gettyHamilton ekki á besta bílnum en í besta liðinuAugljóst var í byrjun tímabils að Ferrari bílarnir voru hraðari en bílar Mercedes. Þýski bílaframleiðandinn hefur verið allsráðandi síðastliðin ár og þurfti liðið því í fyrsta skiptið að vinna virkilega fyrir titlinum. Mercedes liðið gerði það svo sannarlega. Ofan á að þróa bílinn jafnt og þétt í gegnum tímabilið var liðið yfirleitt með Ferrari í vasanum þegar kom að taktík bæði í keppnum og tímatökum. Þegar pressan verður meiri virðist liðið einhvernveginn finna annan gír. Því bendir allt til þess að Mercedes haldi áfram að vera í toppslagnum næstu árin. Það gefur Lewis Hamilton tækifæri á að ná metum Michael Schumacher og verða því besti ökuþór heims. Hamilton vantar 18 sigra og tvo titla til að jafna Schumacher.
Mest lesið Lífvörðurinn bannaður: „Leyfið mér að hjálpa Messi“ Fótbolti „Var meira fyrir að borða nutella úr krukkunni og spila tölvuleiki“ Íslenski boltinn Stúkan fær liðsstyrk í þremur kanónum Íslenski boltinn Besta auglýsing Fram: Rúnar kann öll vafasömu trixin Íslenski boltinn Tekjur Wrexham í hæstu hæðum Fótbolti „Ég veit bara að þetta er mjög vont“ Fótbolti Tárin streymdu hjá gömlu United-hetjunni Fótbolti 570 milljóna uppsafnað tap hjá Everton Fótbolti Besta-spáin 2025: Vindur í Skagaseglin Íslenski boltinn Þórey aftur inn í landsliðið: „Þurftum bara aðeins að hreinsa andrúmsloftið“ Handbolti Fleiri fréttir Verstappen óánægður með Red Bull fyrir að reka liðsfélagann Segir að Schumacher sé ófær um að tala: „Staðan er mjög sorgleg“ Ballið búið hjá Hamilton og Vergara Red Bull búið að gefast upp á Lawson Hamilton dæmdur úr leik í Kína Piastri vann Kínakappaksturinn Hamilton vann sprettkeppnina en Piastri á ráspól Fyrsti ráspóll Hamiltons í rauðu Eddie Jordan látinn Formúlan gæti farið til Bangkok Lando Norris aðeins 0,8 sekúndum á undan heimsmeistaranum í markið „Þetta tímabil verður ekki fyrir hjartveika“ McLaren með tvo fremstu menn á ráspól í fyrstu keppni ársins „Kominn tími á konu í Formúlu 1“ F1 2025: Guð gefðu okkur besta tímabil sögunnar Cadillac verður með lið í formúlu 1 Lofaði Hamilton að ræða ekki við Verstappen Sjá meira