Innlent

Dæmd í fangelsi fyrir að húðflúra börn á Akureyri

Atli Ísleifsson skrifar
Dómurinn telur að konan hafi gerst brotleg við barnaverndarlög og mengunarvarnir og reglugerð um hollustuhætti.
Dómurinn telur að konan hafi gerst brotleg við barnaverndarlög og mengunarvarnir og reglugerð um hollustuhætti. Vísir/Vilhelm
Héraðsdómur Norðurlands eystra hefur dæmt konu í þrjátíu daga fangelsi fyrir að hafa húðflúrað þrjár stúlkur, þar af tvær ólögráða, í heimahúsi á Akureyri í desember á síðasta ári.

Konan var hvorki með tilskilin leyfi frá Landlækni né skriflegt leyfi frá forráðamönnum stúlknanna. Í ákæru segir að hún hafi með þessu stefnt heilsu stúlknanna í alvarlega hættu.

Dómurinn telur að konan hafi gerst brotleg við barnaverndarlög og mengunarvarnir og reglugerð um hollustuhætti.

Konan sótti ekki þing þrátt fyrir að hafa verið birt fyrirkall, en hún játaði verknaðinn við skýrslutöku. Hún hefur áður hlotið dóma fyrir þjófnaði, umferðarlagabrot og brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni og var nú síðast dæmd til að sæta fangelsi í þrjá mánuði, þann 10. september 2018.

Í dómnum segir enn fremur að haldlögð húðflúrunartæki og litir til húðflúrunar sem voru haldlögð verði gerð upptæk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×