Fjármálafyrirtæki stofna nýja kauphöll Kristinn Ingi Jónsson skrifar 9. janúar 2019 09:00 NYSE kauphöllin í New York er ein sú stærsta í heimi. Nordicphotos/Getty
Nokkur stærstu fjármálafyrirtæki Bandaríkjanna hafa tekið höndum saman um stofnun nýrrar kauphallar sem ætlað er að auka samkeppni á sviði verðbréfaútgáfu og draga úr viðskiptakostnaði fjárfesta. Fyrirtækin Fidelity Investments, TD Ameritrade, Morgan Stanley og Citadel Securities standa meðal annars að baki kauphöllinni sem fengið hefur nafnið Members Exchange eða MEMX. Markmið stofnendanna er að veita stærstu fyrirtækjunum á umræddum markaði, fyrst og fremst New York Stock Exchange, Nasdaq og Cboe Global Markets, harða samkeppni. Hlutabréf í fyrirtækjunum þremur féllu um á bilinu tvö til þrjú prósent í verði eftir að tilkynnt var um áformin á mánudag. Í fréttatilkynningu frá MEMX kom fram að stefnt væri að því að sækja um starfsleyfi hjá bandaríska verðbréfaeftirlitinu snemma á þessu ári en það tekur eftirlitið að jafnaði um eitt ár að afgreiða slíkar umsóknir, eftir því sem fram kemur í frétt Financial Times. Nýjum keppinautum á borð við IEX hefur gengið erfiðlega að hasla sér völl í samkeppninni við stærstu kauphallir Bandaríkjanna en kauphallir í eigu Intercontinental Exchange, Nasdaq og Cboe ráða yfir meirihluta markaðarins.
Bandaríkin Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Viðskipti innlent „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Viðskipti innlent Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Viðskipti innlent Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Viðskipti innlent Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna Viðskipti innlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira