Planta tré fyrir gesti og umbuna þeim sem koma hjólandi á hótelið ION hótel kynnir 24. apríl 2019 08:45 Sjálfbær maí á ION Adventure Hotel á Nesjavöllum.
Sjálfbær maí er sérstakt tilboð ION Adventure Hotel á Nesjavöllum sem gengur út á græna upplifun gesta. Í samstarfi við Skógræktarfélag Íslands og veitingastaðinn Sumac Grill + Drinks verður boðið upp á gistingu fyrir tvo, ásamt morgunverði og þriggja rétta kvöldverði. Skógræktarfélagið mun planta tré fyrir hvert tilboð og þeir sem mæta hjólandi, gangandi eða á rafmagnsbíl fá uppfærslu í Deluxe herbergi.„Sjálfbærni, náttúran og loftslagsmálin eru okkur á ION Adventure Hotel hugleikin og við gerum okkar ýtrasta til þess að vera sjálfbær,“ útskýrir Hinrik Hinriksson, sölu- og tekjustjóri ION Hótela. „Þau hjá Skógræktarfélagi Íslands eru nágrannar okkar og koma oft til okkar í mat. Okkur fannst Rótarskotið sem félagið vann með björgunarsveitunum algjör snilldarhugmynd og vildum gera eitthvað í líkingu við það,“ segir Hinrik.Trjárækt bindur kolefni úr andrúmsloftinu og fyrir hvert tilboð verður gróðursett tré við Úlfljótsvatn og fær kaupandinn lítinn smjörhníf úr tré því til staðfestingar. Þá er kjötneysla ein stærsta ástæða fyrir losun koldíoxíðs út í andrúmsloftið og þess vegna geta gestir valið þriggja rétta grænmetisseðil frá Sumac Grill + Drinks.„Grænmetisréttirnir hjá Sumac hafa fengið frábæra dóma. Gestir munu þó einnig geta valið af matseðli okkar sem inniheldur bæði kjöt og fisk,“ segir Hinrik. „Með tilboðinu viljum við einnig hvetja fólk til þess að hreyfa sig og þess vegna fá þeir gestir sem koma á hjóli eða gangandi, uppfærslu upp í Deluxe herbergi. Nesjavallaleiðin verður opnuð í maí en það er ótrúlega falleg þjóðleið frá Reykjavík. Þeir gestir sem velja umhverfisvænan samgöngumáta eins og rafmagnsbíl fá einnig uppfærslu í Deluxe herbergi. Þegar á hótelið er komið geta gestir farið í gönguferðir um svæðið en allt í kringum hótelið eru fallegar gönguleiðir. Gestir geta einnig notið þess að fara í laugina okkar en vatnið í lauginni er affallsvatn frá Nesjavallavirkjun og inniheldur heilnæm steinefni.“ ION Luxury Adventure Hotel - Where Everything Meets Nothing from Ion Luxury Adventure Hotel on Vimeo.Græna upplifun á ION hótel er hægt að panta hér eða með því að senda tölvupóst á sales@ioniceland.is merkt „Sjálfbær maí“.Þessi kynning er unnin í samstarfi við ION Adventure Hotel.
Ferðalög Loftslagsmál Mest lesið Tútturnar úti á Grammy-hátíðinni Tíska og hönnun Fjölskyldan veik af fíknivanda en alltaf staðið þétt saman Lífið Þær keppa í Ungfrú Ísland 2026 Lífið Laufey Lín fékk önnur Grammy-verðlaun Lífið Fundu ástina í stjórnarráðinu Lífið Íslenskt par í Köben stofnar nýjan leikjavef Lífið Stjörnulífið: Dorrit og Pharrell Williams í fíling Lífið Þessi fengu Grammy og sendu ICE-kaldar kveðjur Lífið „Ekki láta aldurinn eða stoltið stoppa þig“ Lífið Forsetinn hótar lögsókn: „Vertu viðbúinn Noah“ Lífið Fleiri fréttir Hvað er eiginlega málið með Mál málanna? Fermingardagurinn er stór dagur Skilnaður „ógeðslega erfitt fyrirbæri“ en til eru verkfæri sem hjálpa Batinn kom úr ólíklegri átt - Fegrunarmeðferð varð lykillinn að bættri heilsu „Geðrækt þarf ekki að vera flókin“ 43 ára kvikmyndasaga kvödd Draumaferðin gæti verið nær en þú heldur Hyalúrónsýra, kraftaverkaefni nútímans Hafa umbreytt lífsskilyrðum fólks Frank Sinatra, Dean Martin og Sammy Davis Jr. lifna við í Hörpu Góðgerlar fyrir jafnvægi á hverju æviskeiði Biostrength er tæknibylting í styrktarþjálfun Sjá meira