Evrópubúar segjast ekki hafa fengið að kjósa á Bretlandi Kjartan Kjartansson skrifar 23. maí 2019 13:27 Jeremy Corbyn, leiðtogi Verkamannaflokksins, við kjörstað í morgun. Svo virðist sem að evrópskum borgurum hafi verið vísað frá víða á Bretlandi. Vísir/EPA
Fjöldi frásagna hefur komið fram um að borgarar evrópskra ríkja sem eru búsettir á Bretlandi hafi ekki fengið að greiða atkvæði í Evrópuþingskosningunum sem hófust í dag. Svo virðist sem að stjórnsýslulegum mistökum sveitarstjórna sé um að kenna.The Guardian segir að fjöldi Evrópubúa hafi mætt á kjörstaði í dag en verið vísað frá af starfsmönnum kjörstjórna sem sögðu þá ekki hafa atkvæðisrétt á Bretlandi. Margir þeirra segi að eyðublöð um að þeir ætluðu sér að greiða atkvæði á Bretlandi sem sveitarstjórnir áttu að senda þeim hafi annað hvort borist of seint eða alls ekki. Sumir þeirra sem var vísað frá segja að nöfn þeirra hafi verið á kjörskrá en að strikað hafi verið yfir þau. Aðrir segjast hafa skilað eyðublöðum í tæka tíð en að starfsmenn kjörstjórnar hafi ekki stimplað þau fyrr en eftir að frestur til að skila þeim rann út. „Það er óásættanlegt að þessi ríkisstjórn og starfsmenn kjörstjórnar hafi mismunað evrópskum borgurum. Það verður ekki þaggað niður í mér og það verður ekki þaggað niður í evrópskum borgurum,“ segir Moritz Valero, þýskur borgari sem ætlaði að greiða atkvæði í London í dag.
Bretland Evrópusambandið Mest lesið Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Erlent Enn óljóst hvað verður um umsóknina Innlent Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Innlent Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Innlent „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Innlent „Þeir munu hengja mig“ Erlent Fleiri fréttir Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Telja Rússa undirbúa nýja sókn á landi að Kænugarði Óttast um þúsund manns sem fastir eru í göngum í Nepal Átta látin og átján saknað eftir að ferju hvolfdi við Kýpur Óttast um fimmtán manns í kjölfar skyndiflóðs í Miklagljúfri Íranir svara fyrir sig og Trump ýjar að árásum á Kharg-eyju Loftárásir á Hormússundi hafnar á ný Rýmdi grunnskólann augnablikum áður en skyndiflóð skall á Bresk kona stungin til bana á lestarstöð í Þýskalandi Haraldur Noregskonungur jarðsunginn 9. september „Framkvæmdastjórnin virðir vilja íslensku þjóðarinnar“ Árásarmaðurinn enn ófundinn Skipulögð leit eftir skotárás á hátíð „Nú er komið að mér“ Ávarpar norsku þjóðina í fyrsta skipti sem konungur Milljónir í sekt fyrir að veðja á ræður forsetans Minnst þrjátíu og sjö látin eftir árás Rússa Erlendir fjölmiðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana Kalla bandaríska sendiherrann á teppið vegna svívirðinga um ráðherra Hver er Hákon VIII Noregskonungur? Sjá meira