Hvammsvirkjun Edda Pálsdóttir skrifar 20. júní 2019 09:00 Í morgun vaknaði ég við að sólin skein inn um gluggann hjá mér. Ég gekk út á hlað og teygaði að mér tæra loftið sem er komið með örlítið haustbragð. Náttúran og dýrin voru að spila fyrir mig yndislega sinfóníu þar sem ég stóð á hlaðinu og nuddaði stírurnar úr augunum. Fuglarnir léku laglínuna en frýs hrossa og jarm kinda settu einnig sinn svip á lagið. Kjölfestan var svo þungur niður Þjórsár sem heyrist í fjarska. Afi minn sem var bóndi á þessum fallega stað, Hamarsheiði í Skeiða-og Gnúpverjahreppi, hlustaði oft á árniðinn til að spá fyrir um hvernig veðrið yrði þann daginn. Þegar ég er nægilega vöknuð legg ég af stað upp í hestagirðingu að bjóða gullunum mínum góðan daginn. Gangan er stutt en aðeins á fótinn. Við hvert skref fer að sjást betur og betur í fjalladrottninguna Heklu og loks sést hvar jökuláin Þjórsá breiðir úr sér á fallegum áreyrum neðan við bæinn Fossnes. Ég er nú hvorki skáldmælt né trúuð en einhvern veginn finnst mér orð Halldórs Laxness lýsa þessu best, mér leið eins og ég hefði fyllst kraftbirtingarhljómi guðdómsins við útsýnið sem bar fyrir augun. Ég settist niður og naut þess einfaldlega að vera til. Þessa tilfinningu þekkja þeir sem komið hafa á staðinn en hún Jóhanna Jóhannsdóttir í Haga lýsti svona dögum með þeim orðum að fegurðin væri algjör. Þar sem ég sat í röku grasinu, andaði að mér fjallaloftinu og klappaði folaldinu hennar Hörpu minnar læddust að mér óþægilegar hugsanir. Þessum gullfallega stað er nefnilega veruleg hætta búin vegna fyrirhugaðrar Hvammsvirkjunar í Þjórsá. Ég hafði verið á íbúafundi kvöldið áður þar sem rætt var Aðalskipulag Skeiða-og Gnúpverjahrepps. Þar lýstu margir viðstaddir yfir andstöðu við Hvammsvirkjun og hvöttu sveitarstjórn til að neita Landsvirkjun um framkvæmdaleyfi. Margir íbúar í Skeiða-og Gnúpverjahreppi hafa barist ötullega gegn fyrirhugaðri Hvammsvirkjun en virkjunin hefur hangið eins og mara yfir samfélaginu í hartnær tvo áratugi. Ég sjálf hef tekið þátt í baráttunni undanfarin ár. Það á að heita að við Íslendingar búum í lýðræðisríki en eftir að hafa staðið í stappi vegna virkjunarinnar og reynt að láta rödd okkar sem erum á móti henni heyrast verð ég að setja mínar efasemdir við það. Við höfum rætt ítrekað við sveitarstjórn, farið á fund umhverfisráðherra, rætt við fulltrúa Umhverfis-og samgöngunefndar og svo mætti lengi telja. Það er sama við hvern er rætt, hver bendir á annan, engin axlar ábyrgð á málinu en benda á að hægt sé að senda inn athugasemdir til Skipulagsstofnunar. Eftir að hafa kynnt mér gaumgæfilega allar skýrslur, sem sennilega slaga í þúsund blaðsíður í heildina, sendi ég persónulegar athugasemdir og vann í félagi við aðra stjórnarmenn athugasemdir fyrir hönd Gjálpar, sem er félag um atvinnuuppbyggingu við Þjórsá. Félagið Gjálp hefur sett sig ítarlega inn í málið og komist að þeirri niðurstöðu að Hvammsvirkjun mun ekki skapa nein störf fyrir íbúa í Skeiða-og Gnúpverjahreppi heldur þvert á móti skerða möguleika þeirra til atvinnuuppbyggingar og hafa verulega neikvæð samfélagsleg áhrif. Við þetta má bæta að fjársafn Gnúpverja hefur í marga áratugi verið rekið niður með farvegi Þjórsár þar sem uppistöðulónið mun standa. Myndin á hundraðkrónu seðlinum gamla sýnir einmitt fjallsafnið koma niður Bringu sem er rétt ofan við fyrirhugaða virkjun. Með lóninu myndi því ómetanlegar menningarminjar fara undir vatn. Það yrði varla svipur hjá sjón að ríða á móti fjallsafninu en göngur og réttir eru í huga margra einn skemmtilegasti og mikilvægasti viðburður ársins. Eftir að hafa skilað inn athugasemdum sé ég stundum fyrir mér risavaxið skrifstofutröll sem situr hlæjandi á hækjum sér og skeinir sér á athugasemdunum. Ég veit auðvitað að þetta er ekki rétt en hins vegar berast nánast aldrei svör við athugasemdunum og svo er Skipulagsstofnun í raun alveg valdalaus því hún gefur einungis umsögn um málið en sveitarstjórn ræður síðan alfarið hvort af framkvæmdinni verður alveg óháð áliti Skipulagsstofnunar. Svona merkileg er því leiðin sem við höfum til að láta í okkur heyra: lesa endalausar skýrslur og skila athugasemdum til valdalausrar stofnunar. Þessu til viðbótar má nefna að það er verulega umdeilanlegt hvort það sé yfir höfuð þörf á þessari raforku. Á fundi sveitarstjórnar síðastliðið haust sagði verkefnisstjóri Hvammsvirkjunar að áformað væri að rafmagn úr virkjuninni yrði notað í Kísilver. Það er þyngra en tárum taki ef rétt reynist. Þegar spurt er að þessu nú er svarið einfaldlega að raforkan fari inn á dreifikerið og því sé ekki hægt að segja í hvað orkan fari. Þetta er ekkert svar og í besta falli verulega lúaleg undanbrögð. Ég fyllist vanmætti og hugsa með mér hvað það væri nú gott að vera bara alveg sama. Skvetta, tveggja vetra gamla tryppið mitt, kemur röltandi til mín og bítur í jakkaermina mína. Ég ranka við mér, lít upp og við blasir stórkostlegt útsýni yfir Þjórsá og Heklu. Mér er nefnilega ekki sama og ég mun ekki gefast upp. Það er skylda mín að leggja mitt að mörkum til þess að allir fái að njóta þessa fallega staðar um ókomna tíð, að íbúar Reykjanesbæjar geti dregið andann í ómenguðu lofti og til að Skeiða-og Gnúpverjahreppur blómstri og dafni. Ég klappa Skvettu og strengi þess heit að þegar hún verður orðin tamin munum við fylgja fjallsafni Gnúpverja meðfram óspilltum farvegi Þjórsár.Greinin birtist fyrst í Stundinni 1. september 2017 en er nú endurbirt í tilefni Þjórshátíðar 2019.Síðan 2017 hefur Skipulagsstofnun skilað af sér umræddu áliti um Hvammsvirkjun. Í álitinu, sem út kom árið 2018, segir að virkjunin myndi hafa „verulega neikvæð“ áhrif á landslag í ljósi þess að umfangsmiklu svæði verður raskað og mjög margir verða fyrir neikvæðum áhrifum vegna ásýndar- og yfirbragðsbreytinga. Í áliti Skipulagsstofnunar segir einnig að neikvæð áhrif af Hvammsvirkjun verði „óafturkræf“ og að fyrirhugaðar framkvæmdir séu líklegar til að hafa „talsverð neikvæð“ áhrif á útivist og ferðaþjónustu. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Orkumál Skeiða- og Gnúpverjahreppur Mest lesið Áfengi eykur líkur á sjö tegundum krabbameina Sigurdís Haraldsdóttir Skoðun Lygar, ýkjur, svik og hótanir – dapurlegir fyrstu dagar nýs menntamálaráðherra í embætti Ragnar Þór Pétursson Skoðun Reykjavík á ekki að reka byggingarfélag Þórdís Lóa Þórhallsdóttir Skoðun Kæra Hanna Katrín, lengi getur vont versnað Vala Árnadóttir Skoðun Stjórnmálamaður metinn að verðleikum Þórarinn Snorri Sigurgeirsson Skoðun Borgin sem við byggjum er borg allra Heiða Björg Hilmisdóttir Skoðun Magnea Marinósdóttir á brýnt erindi í borgarstjórn Hörður Filippusson Skoðun Er biðin eftir ofurömmu á enda? Meyvant Þórólfsson Skoðun Braskmarkaðurinn Dóra Björt Guðjónsdóttir Skoðun Örvæntingarbandalag verklausa vinstrisins Jón Ferdínand Estherarson Skoðun Skoðun Skoðun Stjórnmálamaður metinn að verðleikum Þórarinn Snorri Sigurgeirsson skrifar Skoðun Magnea Marinósdóttir á brýnt erindi í borgarstjórn Hörður Filippusson skrifar Skoðun Borgin sem við byggjum er borg allra Heiða Björg Hilmisdóttir skrifar Skoðun Evrópa lætur ekki undan hótunum Trumps um Grænland Kristján Vigfússon skrifar Skoðun Rödd ungs fólks Nanna Björt Ívarsdóttir skrifar Skoðun Eflingarfólk! Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar Skoðun Lesblindir sigurvegarar Guðmundur S. Johnsen skrifar Skoðun Steinunn er frábær! Flosi Eiríksson skrifar Skoðun Mega Birta og Stein sitja við fullorðinsborðið? Dagbjört Hákonardóttir,Gunnar Örn Stephensen skrifar Skoðun Þegar fullveldi smáríkja er ekki lengur sjálfsagt Magnús Árni Skjöld Magnússon skrifar Skoðun Rasismi er ekki „hægri“, hann er bara bjánalegur Elliði Vignisson skrifar Skoðun Byggjum fyrir fólk Hafdís Hanna Ægisdóttir,Hjördís Sveinsdóttir,Silja Elvarsdóttir skrifar Skoðun Að brjóta glerþakið: lýðræðisleg þátttaka fólks með þroskahömlun og skyldar fatlanir Anna Lára Steindal skrifar Skoðun Hvalveiðar í sviðsljósinu Elissa Phillips skrifar Skoðun Nýsköpun drifin áfram af trausti og samfélagslegri ábyrgð Jón Magnús Kristjánsson skrifar Skoðun Frítt í Strætó og sund – Með fólkið í forgrunni Ellen Calmon skrifar Skoðun Mun samfélagsmiðlabann skaða unglingsdrengi? Ásdís Bergþórsdóttir skrifar Skoðun Örvæntingarbandalag verklausa vinstrisins Jón Ferdínand Estherarson skrifar Skoðun Lygar, ýkjur, svik og hótanir – dapurlegir fyrstu dagar nýs menntamálaráðherra í embætti Ragnar Þór Pétursson skrifar Skoðun Hver spurði þig? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Þöggunin sem enginn viðurkennir Ásgeir Jónsson skrifar Skoðun Borgarlína á Suðurlandsbraut: 345 stæði hverfa eða ónýtast Friðjón Friðjónsson skrifar Skoðun Að byggja upp flæði og traust í heilbrigðiskerfinu Sandra B. Franks skrifar Skoðun Ég elska strætó Birkir Ingibjartsson skrifar Skoðun Þróunarsamvinna eflir öryggi og varnir Íslands Birna Þórarinsdóttir,Bjarni Gíslason,Gísli Rafn Ólafsson,Hrönn Svansdóttir,Stella Samúelsdóttir,Tótla I. Sæmundsdóttir skrifar Skoðun Braskmarkaðurinn Dóra Björt Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Reykjavík á ekki að reka byggingarfélag Þórdís Lóa Þórhallsdóttir skrifar Skoðun Þúsund klifurbörn í frjálsu falli Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Markmið: Fullkomnasta heilbrigðisþjónusta sem tök eru á að veita Steinunn Þórðardóttir skrifar Skoðun Þegar engin önnur leið er fær Rebekka Maren Þórarinsdóttir skrifar Sjá meira
Lygar, ýkjur, svik og hótanir – dapurlegir fyrstu dagar nýs menntamálaráðherra í embætti Ragnar Þór Pétursson Skoðun
Skoðun Mega Birta og Stein sitja við fullorðinsborðið? Dagbjört Hákonardóttir,Gunnar Örn Stephensen skrifar
Skoðun Að brjóta glerþakið: lýðræðisleg þátttaka fólks með þroskahömlun og skyldar fatlanir Anna Lára Steindal skrifar
Skoðun Nýsköpun drifin áfram af trausti og samfélagslegri ábyrgð Jón Magnús Kristjánsson skrifar
Skoðun Lygar, ýkjur, svik og hótanir – dapurlegir fyrstu dagar nýs menntamálaráðherra í embætti Ragnar Þór Pétursson skrifar
Skoðun Þróunarsamvinna eflir öryggi og varnir Íslands Birna Þórarinsdóttir,Bjarni Gíslason,Gísli Rafn Ólafsson,Hrönn Svansdóttir,Stella Samúelsdóttir,Tótla I. Sæmundsdóttir skrifar
Skoðun Markmið: Fullkomnasta heilbrigðisþjónusta sem tök eru á að veita Steinunn Þórðardóttir skrifar
Lygar, ýkjur, svik og hótanir – dapurlegir fyrstu dagar nýs menntamálaráðherra í embætti Ragnar Þór Pétursson Skoðun