Ólöf Hildur til Advania Data Centers Stefán Ó. Jónsson skrifar 26. júlí 2019 10:01 Ólöf Hildur Pálsdóttir Advania
Ólöf Hildur Pálsdóttir hefur gengið til liðs við Advania Data Centers og tekur við framkvæmdastjórn fjármálasviðs félagsins. Í tilkynningu Advania um ráðningu Ólafar er ferill hennar reifaður. Þar segir meðal annars að Ólöf hafi undanfarið starfað sem sjálfstæður fjármálaráðgjafi og setið í stjórnum félaga, m.a. Regins hf. Þar á undan hafi Ólöf starfað í um 20 ár hjá Arion banka og forvera hans m.a. sem stjórnandi á fyrirtækjasviði. „Almennt hefur starfsferill hennar snúist um ákvarðanir um fjárfestingar og lánveitingar, en jafnframt greiningarvinnu og samningagerð. Ólöf hefur jafnframt reynslu af straumlínustjórnun og sat í ýmsum innri ákvörðunarnefnum innan bankans,“ eins og segir í tilkynningunni en Ólöf er menntaður viðskiptafræðingur, Cand.Oecon af fjármálasviði við Háskóla Íslands þar sem hún lauk námi árið 2000.Advania Data Centers á og rekur tvö gagnaver; THOR DC, staðsett á höfuðborgarsvæðinu, og MJOLNIR DC sem hóf starfsemi árið 2013. Er nú svo komið að það síðarnefnda telst stærsta gagnaver landsins. Haft er eftir Eyjólfi Magnúsi Kristinssyni, forstjóra Advania Data Centers, í tilkynningunni að mikill uppgangur hafi verið í gagnaversrekstri félagsins. Því sé „ótrúlega ánægjulegt að fá jafn reynslumikinn aðila og Ólöfu til liðs við okkur til að fást við þau spennandi verkefni sem framundan eru” segir Eyjólfur Magnús .
Tækni Vistaskipti Mest lesið Play telur ríkið geta sparað sér tugi milljóna Viðskipti innlent Segja umfjöllun sem geri Carbfix tortryggilegt fulla af rangfærslum Viðskipti innlent Ráðinn nýr framkvæmdastjóri Domino's á Íslandi Viðskipti innlent Góð kjör á afmælissýningu Toyota Samstarf Hafa bæst í eigendahóp PwC Viðskipti innlent Ráðin sviðsstjóri hafnarinnviða Viðskipti innlent Sorpa endurskoðar verðskrá vegna losunar hrossataðs Neytendur Sjálfstætt starfandi fjölgar: Fljótlegt, einfalt og oft ódýrara Atvinnulíf Sigrún Ósk kveður Stöð 2 Viðskipti innlent Semja um sjóflutninga og hafnaruppbyggingu í Þorlákshöfn Viðskipti innlent Fleiri fréttir Play telur ríkið geta sparað sér tugi milljóna Segja umfjöllun sem geri Carbfix tortryggilegt fulla af rangfærslum Hafa bæst í eigendahóp PwC Ráðin sviðsstjóri hafnarinnviða Ráðinn nýr framkvæmdastjóri Domino's á Íslandi Semja um sjóflutninga og hafnaruppbyggingu í Þorlákshöfn Flugumferð aldrei verið meiri en á síðasta ári Sigrún Ósk kveður Stöð 2 Ný gervigreindarlausn opnar fyrir sólarhringsþjónustu 1819 Nýr framkvæmdastjóri Kuehne+Nagel á Íslandi Kaupa meirihluta hlutafjár Internets á Íslandi hf. Litlar breytingar á þorski í stofnmælingu Hafró Þurfa að greiða starfsfólki Flame enn fleiri milljónir Ráðinn sviðsstjóri viðskiptasviðs hjá Faxaflóahöfnum Íbúðum í byggingu fór fækkandi á milli ára Hættir sem ritstjóri Bændablaðsins Stefán Örn nýr eigandi hjá Rétti JBT Marel tekið til viðskipta í Kauphöllinni Hótel Selfoss verður Marriott hótel Lætur af störfum hjá Stöð 2 eftir tuttugu ára feril Engin hópuppsögn í desember Aldrei jafn margir ferðast með Icelandair Slitu kolefnisbindingarfyrirtækinu Running Tide Eigendum fjölgar hjá LOGOS Þrír og hálfur milljarður króna fyrir Perluna Blöskrar 14 prósent verðhækkun tryggingarfélags Ummæli stjórnarmanns Eflingar um sníkjudýr „til skammar“ Vigdís frá Play til Nettó Gjafabréf og alls konar flatbökudótarí vinsælar jólagjafir í ár Innkalla nagstangir sem hundar veikjast af Sjá meira