Sé maður nógu góður er maður nógu gamall til að vera valinn í landsliðið 10. ágúst 2019 09:30 Cecilía ásamt fjölskyldu sinni. Hrund móður sinni, sem var nýlent á Íslandi, systur sinni og Rúnari föður sínum. Fréttablaðið/Ernir „
Ég var glaður og stoltur og allt það en ég get alveg viðurkennt að þetta er aðeins á undan áætlun,“ segir Rúnar Haraldsson, faðir Cecilíu Ránar sem fagnaði 16 ára afmæli sínu ekki alls fyrir löngu. Cecilía var valin í A-landslið kvenna á fimmtudag. Aðalmarkvörður landsliðsins, Guðbjörg Gunnarsdóttir, er ólétt og verður því ekki með í komandi verkefnum en Cecilía mun berjast um stöðuna við þær Söndru Sigurðardóttur, markvörð Vals, og Sonný Láru Þráinsdóttur, markvörð Breiðabliks. „Nú er það bara hennar að standa sig. Hún er ekki að fara á þessar æfingar bara til að vera með, svo mikið er víst. Það myndi koma mér mjög á óvart og væri alveg nýtt því þannig er ekki hennar karakter. Ég veit alveg hver hennar takmörk eru og þetta er vonandi bara fyrsta skrefið, en ég er kannski ekki alveg hlutlaus,“ segir Rúnar. Móðir Cecilíu, Hrund Guðmundsdóttir, var stödd erlendis þegar kallið kom. „Það er leiðinlegt að vera í burtu á svona stórum degi. Hún er ótrúlega flott og hefur rosalega mikinn metnað og flott í öllu sem hún tekur sér fyrir hendur. Ég varð ótrúlega glöð fyrir hennar hönd,“ náði hún að segja við Fréttablaðið rétt áður en hún þurfti að fara um borð í flugvélina til Íslands. Stærri en RenardKnattspyrnuáhugamenn heyrðu trúlega nafn Cecilíu fyrst fyrir um tveimur árum þegar hún var þá rétt við fermingaraldurinn og spilaði fimm leiki fyrir Aftureldingu/Fram í 2. deildinni. Liðið flaug upp í Inkasso deildina þar sem hún var hún komin í rammann sem aðalmarkvörður. „Júlíus Ármann Júlíusson, sem þjálfaði liðið, sá hana á æfingum og tók hana upp í meistaraflokkinn. Gefur henni séns og hún er komin í byrjunarliðið nánast fyrir fermingu,“ segir Rúnar og bætir við að aldur sé bara einhver tala. Ef maður er nógu góður sé maður nógu gamall. „Hún er stór og ég held að hún sé orðin 188 sentimetrar sem gerir hana einum sentimetra stærri en Wendie Renard, sem er leikmaður Frakka og var hæsta konan á HM kvenna. Hún hefði sem sagt verið hæsti leikmaðurinn á HM sem við sáum og hlógum mikið að. Hún er allavega hærri en ég,“ segir hann og hlær. Cecilía byrjaði snemma að æfa fótbolta. Fyrst með Þrótti en eftir að hún flutti í Mosfellsbæinn fóru hanskarnir á loft. „Frá því á Pæjumótinu, þegar hún fór fyrst í markið, þá sá maður að það var eitthvað þarna. Taktarnir og annað, sem var henni svo eðlilegt að gera og er nánast vonlaust að kenna, var auðvelt. Hún hefur alltaf skarað svolítið fram úr og fundið sig vel í markinu,“ segir hann og bætir við að hún hafi verið hörkuspilari áður en hún tók upp markmannshanskana. „Hún var hörkuleikmaður og er góð með boltann. Hún var byrjuð að vera betri en ég ansi snemma. Það er bullandi fótbolti í henni líka varðandi tækni og annað og trúlega gæti hún haldið á lofti yfir þúsund sinnum.“ Lukkuskref að vera hjá SteinaRúnar segir að það hafi verið mikil heppni fyrir dóttur sína að kynnast Þorsteini Magnússyni markmannsþjálfara. „Steini er búinn að vera með henni í einhver þrjú ár. Hann kynntist henni í KSÍ markmannsbúðum og hafði samband við mig og vildi vinna með henni. Ég kynntist honum svo betur og vildi að hún væri hjá honum. Það var mikið lukkuskref. Svo fer hann til Fylkis á síðasta ári og verður markmannsþjálfari karla og kvenna. Cesilía fann eftir tímabilið í fyrra að hún vildi færa sig skrefi ofar og fara í Pepsi. Kjartan Stefánsson, þjálfari Fylkis, hafði verið verið að fylgjast með henni og fyrir okkur var þetta engin spurning eða efi að ganga í raðir Fylkis. Nú er hún komin með markmannsþjálfarann sinn sem aðstoðarþjálfara og mann sem er á öllum æfingum sem er erfitt að toppa. Plús líka að ég vissi að Kjartan væri til í að taka áhættu með því að henda henni út í djúpu laugina. Hún var bara 15 ára og flestir voru ekki alveg að kaupa það að hann ætlaði að setja 15 ára stelpu í markið í Pepsi Max deildinni. Svo þegar tækifærið kom þá greip hún það og hefur ekki litið um öxl síðan. Ég held líka að hún hafi tekið lítil skref, ekki of stór í einu. Þetta snýst bara um að fá að spila. Það er það eina sem skiptir máli, finnst mér. Að finna stað þar sem leikmaður finnur traust og fær að spila. En auðvitað er þetta að gerast hraðar en ég átti von á, eðlilega. En hitt var líka hratt. Að fara að spila með meistaraflokki UMFA áður en hún fermdist og vera komin í Pepsi Max aðeins 15, en landsliðið er auðvitað miklu stærra. Ég hef samt engar áhyggjur af henni.“
Birtist í Fréttablaðinu Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið Þvottabjörn Haalands uppseldur og sá sem bjó hann til kominn á eftirlaun Fótbolti Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Handbolti „Ég er fyrst og fremst vonsvikinn með sjálfan mig“ Fótbolti Ástæðan fyrir því að Bellingham sló til Barco eftir leik Fótbolti „Fjögur ár eru langur tími“ Fótbolti Ísland á tvo stigahæstu leikmenn mótsins Körfubolti Frétti af andláti föður síns rétt áður en hann fór í loftið Fótbolti Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Handbolti Bubbi fékk áritaða KR-treyju í afmælisgjöf Íslenski boltinn Haukakonur fengu stóran skell í síðasta leik fyrir endurkomu Söru Íslenski boltinn Fleiri fréttir Ari Leifsson í Stjörnuna Fáum svo mörg færi að það er erfitt að skora ekki Haukakonur fengu stóran skell í síðasta leik fyrir endurkomu Söru Afturelding með fjögurra stiga forskot á toppnum Uppgjör og viðtöl: Gri/Nja - FH 1-6 | Flugeldasýning sendi FH á toppinn Bubbi fékk áritaða KR-treyju í afmælisgjöf Jóhannes Kristinn í FH en „klárlega hluti af framtíðinni í Víkinni“ Adam Ægir mættur til KA Sjáðu Blika fara á toppinn og glæsimark í Eyjum Búið að opna gluggann: Hvað er búið að gerast og hvað þarf að gerast? Uppgjörið: ÍBV - Valur 2-1 | Ferskir Frakkar, eitraðar Eyjakonur og veiklulegur Valur Uppgjörið: Breiðablik - Víkingur 4-1 | Skoruðu þrjú á sjö mínútna kafla Skoða markaðinn til að þurfa ekki að gefa fleiri leiki „Hann var farinn að spyrja hvenær við ætluðum að flytja til Íslands“ Sjáðu Stjörnuna stimpla sig í titilslag og Hamlett koma Fram af botninum Bónorð strax eftir leik í Garðabæ „Ekkert af þessu gekk og þá líður manni ömurlega“ Uppgjörið: Þróttur-Fram 0-1 | Unnu aftur og komust af botninum Uppgjörið: Stjarnan-Þór/KA 3-2 | Stjörnukonur aftur á sigurbraut Fimm HK-ingar á skotskónum í stórsigri KSÍ ætlar ekki að láta gervigreindina koma í stað starfsfólks Sjáðu dramatíkina í endurkomusigri Blika „Þetta er svo hörmulegur dómur, án gríns“ „Skil ekki hvernig menn geta flaggað á eða séð eitthvað sem gerist ekki“ Fylkismenn keyrðu yfir Vestra í upphafi leiks Frábært að koma úr meiðslum og skora sitt fyrsta mark Valur bætir við sig fyrrum markadrottningu úr Lengjudeildinni Uppgjörið: Breiðablik-Keflavík 2-1 | Kristinn tryggði Blikum sigurinn Þórdís fer frá Þrótti til Breiðabliks Völdu besta og efnilegasta leikmanninn ásamt úrvalsliði deildarinnar Sjá meira