Ætla að afnema allar hömlur á auðgun úrans Gunnar Reynir Valþórsson og Samúel Karl Ólason skrifa 5. september 2019 08:47 Hassan Rouhani, forseti Íran. AP/Forsetaembætti Íran
Stjórnvöld í Íran segjast ætla að afnema allar hömlur sem settar hafa verið á rannsóknir og þróun kjarnorkumála hjá ríkinu. Þetta kom fram í máli forseta landsins, Hassans Rouhani og segir hann að nýju reglurnar taki gildi frá og með morgundeginum. Strax á morgun verði því hafist handa við að hanna skilvindur til að hraða auðgun úrans, sem er nauðsynlegt skref í kjarnorkuvinnslu. Bandaríkjamenn sögðu sig í fyrra frá kjarnorkusamningnum sem gerður hafði verið við Íran árið 2015 og settu viðskiptahömlur að nýju á Íran í framhaldinu. Síðan þá hefur olíusala Íran dregist verulega saman og hafa Íranar átt í viðræðum við Evrópuríki og Rússa um það að selja olíu fram hjá þvingunum Bandaríkjanna.Sjá einnig: Vilja samkomulag um olíusölu sem fyrstYfirvöld í Íran hafa á móti tekið skref sem öll miða að því að brjóta samninginn, enda telja þau sig ekki skuldbundin til að fylgja honum geri Bandaríkin það ekki. Rouhani forseti segir að viðræður við Bandaríkin komi aðeins til greina að því gefnu að viðskiptaþvingunum verði hætt. Íranar hafa ávallt haldið því fram að markmið þeirra sé ekki að þróa kjarnorkuvopn heldur að framleiða rafmagn með kjarnorku.
Bandaríkin Íran Mest lesið Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Erlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Fleiri fréttir Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Sjá meira