Haraldur í 2. sæti eftir fyrstu tvo hringina í Svíþjóð Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 26. september 2019 17:00 Haraldur lék á sjö höggum undir pari í dag. vísir/getty
Haraldur Franklín Magnús er í 2. sæti eftir fyrstu tvo hringina á Lindbytvätten Masters-mótinu í golfi í Svíþjóð. Mótið er hluti af Nordic Golf-mótaröðinni. Haraldur lék á sjö höggum undir pari í dag. Hann fékk einn örn, sex fugla og einn skolla á öðrum hringnum. Í gær lék Haraldur á fimm höggum undir pari og hann er því samanlagt á tólf höggum undir pari. Hann er einu höggi á eftir Svíanum Robin Petersson. Haraldur freistar þess að tryggja sér þátttökurétt á Áskorendamótaröðinni á næsta tímabili. Hann er í 5. sæti á stigalista Nordic Golf-mótaraðarinnar. Fjórir efstu komast á Áskorendamótaröðina. Axel Bóasson náði sér ekki á strik í dag og komst ekki í gegnum niðurskurðinn. Axel lék á einu höggi undir pari í dag og endaði á einu höggi yfir pari.
Golf Mest lesið Mátti ekki tefla í gallabuxum og hættir keppni á heimsmeistaramóti Sport Hákon kom inn á og hélt hreinu í fyrsta úrvalsdeildarleiknum Fótbolti Ronaldo segir að storminn muni lægja undir stjórn Amorim Fótbolti Heimsmeistararnir þrír fóru allir áfram Sport Harmur hrokagikksins Haaland Enski boltinn Enn eitt skráningarvesenið hjá Börsungum Fótbolti Skytturnar aftur upp í annað sæti eftir sigur gegn nýliðunum Enski boltinn Freyr einnig í viðtal og einn erlendur Fótbolti Töp hjá Íslendingaliðunum í Þýskalandi Handbolti Tapaði níu leggjum í röð eftir níu pílna leik og var sendur heim Sport Fleiri fréttir Charlie Woods fór holu í höggi í fyrsta sinn Tiger og sonur í forystu á feðgamótinu Verða að hafa fæðst sem konur til að fá að keppa á LPGA Vill verðlaunafé á Ryder Cup til að styrkja góð málefni Meiddur Tiger segist enn hafa eldmóðinn Fór holu í höggi yfir húsið sitt Vann hæsta verðlaunafé sem golfkona hefur fengið McIlroy skaut niður dróna „Orðinn þreyttur á Venna strax á fyrstu holu“ McIlroy kemur „úr felum“ eftir óvenjulegar æfingabúðir Golfstjarnan mætti á upp svið með Trump Kylfingur blindur á auga eftir golfbolta Sjá meira