Óvænt val hjá Maradona á besta leikmanni allra tíma Henry Birgir Gunnarsson skrifar 18. desember 2019 13:30 Maradona ásamt barnabarni sínu, Benjamin Aguero, sem er sonur Sergio Aguero og dóttur Maradona. vísir/getty
Umræðan um besta knattspyrnumann allra tíma er alltaf reglulega á dagskrá og einn sá besti allra tíma, Diego Maradona, hefur nú greint frá því hver sé sá besti allra tíma að hans mati. „Ég tel að Alfredo Di Stefano sé sá besti. Hann var betri en allir. Meira að segja betri en ég,“ sagði Maradona óvenju hógvær en oftar en en ekki hefur verið talað um hann eða Pelé sem þann besta. Þar til Messi og Ronaldo stigu inn á sjónarsviðið. Maradona hefur oft skotið á Pelé í þessari umræðu og er ekkert hættur því. „Pelé vildi aldrei viðurkenna hversu góður Di Stefano var. Vinir Pelé bjuggu til þessa ímynd af honum að hann væri sá besti. Meira ruglið. Ég var meira að segja kosinn sá besti í Ríó, á hans heimavelli.“ Fyrir þá sem ekki þekkja til Di Stefano þá er hann Argentínumaður sem átti sín bestu ár hjá Real Madrid. Þar spilaði hann frá 1953 til 1964 og skoraði þá 216 mörk í 282 leikjum fyrir félagið. Hann lést árið 2014, 88 ára að aldri. Maradona segir að eftirminnilegustu treyjuskiptin hafi verið við Ruud Gullit og Marco van Basten er þeir spiluðu allir á Ítalíu. Besti liðsfélaginn segir Maradona að hafi verið Brasilíumaðurinn Careca en þeir spiluðu saman hjá Napoli.
Fótbolti Mest lesið Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Íslenski boltinn Fleiri fréttir Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Sjá meira