Skoðun

Áhrif COVID-19 á ungmenni

Valgerður Eyja Eyþórsdóttir skrifar

Eins og allir vita þá hefur Covid-19 haft mikil áhrif á allan heiminn og þar á meðal skólagöngu margra. Víða um heim hefur skólum verið lokað en hér á Íslandi höfum við reynt að halda skólastarfinu gangandi en í mjög breyttri mynd. Ég er ein þeirra sem mun útskrifast úr grunnskóla eftir 10 ára skólagöngu í vor. Þannig mun stórum og mikilvægum kafla í lífi mínu senn ljúka og annar taka við. Á sama tíma hefur þessi faraldur skapað mikla óvissu og hafa margar spurningar vaknað um framhaldið. Eins og svo margir aðrir bjóst ég aldrei við þessum enda á grunnskólagöngunni.

Óvissuástand

Framhaldsskólakynningarnar sem voru rétt að byrja, hvað verður um þær? Hvað með árshátíðirnar sem voru framundan? Hvernig verður námsmati háttað? Verður umsóknarfrestur í framhaldsskóla framlengdur? Hvað með útskriftir og útskriftarferðir okkar 10.bekkinga? Hvað með vinnu fyrir okkur ungmennin í sumar í þessu sögulega ástandi þegar atvinnuleysi hefur nánast aldrei mælst meira? Kannski skipta þessar vangaveltur ekki máli í stóra samhenginu þegar margir hafa veikst og margir hverjir berjast fyrir lífi sínu. Það er samt mikilvægt að það sé hlustað á vangaveltur okkar unga fólksins og við vinnum að sameiginlegum lausnum í stað þess að fresta öllu og hætta við.

Jafnvægi í daglegu lífi

Við höfum verið að stíga stór skref með aðstoð tækninnar í skólastarfinu og allir mjög opnir fyrir því að nýta sér allt það góða sem tæknibyltingin hefur fært okkur. Af því tilefni vil ég benda áhugasömum á efni sem við fulltrúar ungmenna í Evrópuráði um örugga netnotkun tókum saman og má finna á Insight2act.net. Á tímum sem þessum er mikilvægt að halda eins venjulegri rútínu og hægt er og reyna að viðhalda jákvæðu hugarfari því þetta er ekki auðvelt en við erum öll að reyna að gera okkar allra besta á þessum skrítnu tímum. Gott er líka að hafa í huga þar sem margt hefur færst á netið að við gætum þess að halda góðu jafnvægi á milli þessara tveggja heima þ.e. net- og raunheima og við pössum upp á líkamlega og andlega heilsu okkar. Við þurfum líka að muna að gæta þess að netsamskipti komi ekki alveg í veg fyrir félagsleg samskipti, alla vega þegar ástandið batnar.

Höfundur er nemandi í 10. bekk í Álftanesskóla og fulltrúi í UngSaft, ungmennaráði SAFT – Samfélag, fjölskylda og tækni.




Skoðun

Skoðun

Börnin okkar

Halla Karen Kristjánsdóttir,Anna Sigríður Guðnadóttir,Valdimar Birgisson skrifar

Sjá meira


×