Atalanta heldur í vonina | Andri Fannar sat allan tímann á bekknum Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 21. júlí 2020 20:00 Muriel hleður í það sem reyndist sigurmark leiksins. EPA-EFE/PAOLO MAGNI
Atalanta vann Íslendingalið Bologna 1-0 í fyrri leik dagsins í ítölsku úrvalsdeildinni og heldur þar með í vonina um að ná Juventus á toppi deildarinnar. Atalanta hafa verið eitt skemmtilegasta lið Evrópu það sem af er tímabili en þeir áttu í stökustu vandræðum með samherja Andra Fannars Baldurssonar í Bologna í kvöld. Siniša Mihajlović - þjálfari Bologna -hefur notað Andra Fannar töluvert í undanförnum leikjum þó hann sé alltaf á bekknum þegar leikirnir byrja. Í kvöld ákvað Mihajlović að geyma hinn efnilega Andra Fannar allan tímann á bekknum og leikurinn tapaðist með einu marki. Markið gerði varamaðurinn Luis Muriel á 62. mínútu en hann kom inn af bekknum í hálfleik. Hann virðist hafa fengið högg á höfuðið í leiknum og skartaði því þessu fallega hárneti er hann skoraði sigurmark leiksins eins og sjá má á myndinni hér að ofan. Atalanta er nú með 74 stig þegar liðið á þrjá leiki eftir. Juventus trónir á toppnum með 80 stig og leik til góða á Atalanta. Það stefnir því allt í enn einn meistaratitil Juventus. Bologna er á sama tíma í 10. sæti með 43 stig.
Fótbolti Ítalski boltinn Tengdar fréttir Lærir mikið af suður-amerísku kempunum Hinn átján ára gamli Andri Fannar Baldursson hefur fengið mörg stór tækifæri með ítalska úrvalsdeildarfélaginu Bologna á þessari leiktíð. Á þremur vikum hefur Andri Fannar spilað m.a. gegn Napoli, AC Milan og Inter. 21. júlí 2020 08:00 Fimm ára samningur bíður Andra Fannars hjá Bologna Hinn átján ára gamli Andri Fannar Baldursson hefur heldur betur slegið í gegn hjá Bologna. 18. júlí 2020 13:00 Mest lesið Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Ísland náði fram hefndum og fagnaði titlinum Sport Tryggvi hafði betur gegn Rubio Körfubolti „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Enski boltinn Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Fótbolti Fleiri fréttir Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Markvörður ársins náði að stöðva Orra Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Í hvínandi gír í Noregi Emelía tryggði Köge sigur Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Tvær tvennur þegar Börsungar tættu gestina í sig Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Moreira stal senunni í slagnum um Mílanó og hélt Alberti á toppnum Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Andreulegt upplegg í sigri Anderlecht Sjá meira
Lærir mikið af suður-amerísku kempunum Hinn átján ára gamli Andri Fannar Baldursson hefur fengið mörg stór tækifæri með ítalska úrvalsdeildarfélaginu Bologna á þessari leiktíð. Á þremur vikum hefur Andri Fannar spilað m.a. gegn Napoli, AC Milan og Inter. 21. júlí 2020 08:00
Fimm ára samningur bíður Andra Fannars hjá Bologna Hinn átján ára gamli Andri Fannar Baldursson hefur heldur betur slegið í gegn hjá Bologna. 18. júlí 2020 13:00