Vætutíð og hlýindi í kortunum eftir allt að 15 stiga frost í dag Kristín Ólafsdóttir skrifar 3. febrúar 2020 07:10 Gera má ráð fyrir austlægri átt í dag, golu eða kalda. Vísir/vilhelm
Frostlaust verður syðst á landinu í dag en kaldara fyrir norðan, þar sem frost gæti farið niður í fimmtán stig í innsveitum. Útlit er fyrir vætutíð og hlýindi frá því á miðvikudag og fram að helgi, að því er fram kemur í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands. Gera má ráð fyrir austlægri átt í dag, golu eða kalda. Snjókoma verður með köflum við suðurströndina og á Reykjanesi fram eftir degi og dálítil él austanlands. Víða þurrt í öðrum landshlutum. Þá gengur í sunnan 10-18 m/s með snjókomu og síðar rigningu sunnan- og vestanlands eftir hádegi á morgun. Heldur hægari vindur á Norðaustur- og Austurlandi og lítilsháttar snjókoma um kvöldið. Hlýnandi veður. Sunnan strekkingur á miðvikudag, milt veður og rigning, en styttir upp norðaustan- og austanlands. „Og það er útlit fyrir vætutíð og hlýindi fram að helgi, en í sunnanáttinni sleppur Norðausturland að mestu við rigninguna,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Veðurhorfur á landinu næstu daga Á þriðjudag: Snýst í vaxandi sunnanátt, 8-15 m/s síðdegis með snjókomu og síðar slyddu eða rigningu, en úrkomulítið á NA- og A-landi. Hlýnandi veður. Á miðvikudag og fimmtudag: Sunnan 8-15 og súld eða rigning, en þurrt að kalla NA-til á landinu. Hiti 2 til 10 stig. Á föstudag: Suðaustanátt, vætusamt og milt, en úrkomulítið N-lands. Á laugardag: Sunnanátt og rigning eða slydda, hiti 0 til 5 stig. Á sunnudag: Suðlæg átt og víða él, hiti nálægt frostmarki.
Veður Mest lesið „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Erlent Verðkröfur stjórnvalda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá Innlent Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Erlent Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Innlent Óveður gengur yfir landið Innlent Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Erlent Valhöll skrefi nær því að verða níutíu herbergja hótel Innlent Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð Innlent Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Innlent Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni Innlent Fleiri fréttir Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð Verðkröfur stjórnvalda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá Valhöll skrefi nær því að verða níutíu herbergja hótel Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Skildu þýfið eftir á vettvangi í stolnum bíl Vandinn heimatilbúinn og vill sleppistæði Með gaddakúlu og sprautunálakylfu „Það væri mjög miður“ Litli spítalinn án samnings og ráðherra sér ekkert svigrúm Kallar 25 ára þak á verðtryggð lán sýndarmennsku Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Óþolandi leyndarhyggja ríki um niðurstöður PISA-prófa Vill skýr viðbrögð við trassaskap í losunarmálum í lög Vilja hækka akstursgjald eldra fólks um allt að 163 prósent Aðeins talið sannað að Andri hafi beitt leigjandann ofbeldi Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni „Það andar ekki köldu á milli mín og neinna annarra“ Hreyfingin stærri en einstakar persónur Aftakaveður gengur yfir landið og búist við vegalokunum vegna ófærðar Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Inga vill áfram banna atvinnumannahnefaleika Vatnið finni sér leið í gegnum sprungur Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Óveður gengur yfir landið Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Sjá meira