Foreldrar og þrjú ung börn dóu í eldsvoða í Ástralíu Samúel Karl Ólason skrifar 19. febrúar 2020 11:35 Vitni segja Hönnuh Baxter hafa hlaupið logandi út úr bílnum og kallað „Hann hellti bensíni á mig“. EPA/DAN PELED
Þrjú börn undir tíu ára aldri og faðir þeirra dóu þegar eldur kviknaði í bíl þeirra í Ástralíu í morgun. Móðir barnanna var flutt illa brunnin á sjúkrahús og lést hún þar af sárum sínum. Útlit er fyrir að kveikt hafi verið í bílnum og að faðirinn, Rowan Baxter, hafi gert það. Vitni segja Hönnuh Baxter hafa hlaupið logandi út úr bílnum og kallað „Hann hellti bensíni á mig“. Lögreglan hefur þó ekki staðfest enn hvað gerðist og stendur rannsókn yfir. Enn fremur segir lögreglan að Rowan hafi setið í farþegasæti bílsins og Hannah hafi keyrt hann. Sjá einnig: Skelfilegur eldsvoði í Ástralíu Þau voru skilin og áttu í umræðum um forræði barnanna. Þegar lögreglu bar að garði voru einungis lík barnanna í bílnum. Þau voru sex, fjögurra og þriggja ára gömul. Eins og áður segir hafði Hannah komist úr bílnum og hafði Rowan gert það einnig. Lögreglan segir þó að hann hafi verið með stungusár sem hann hafi veitt sér sjálfur, samkvæmt frétt ABC News. Hann dó á gangstéttinni þar sem bíllinn hafði verið stöðvaður.
Ástralía Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Deila um sóttkví fer alla leið Innlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent Fleiri fréttir Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Sjá meira