Öruggur sigur Bayern sem er komið í toppsæti deildarinnar Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 16. febrúar 2020 16:30 Thomas Müller lagði upp fyrstu tvö mörk Bayern í dag. Vísir/Getty
Bayern München fóru létt með Köln á útivelli í þýsku úrvalsdeildinni í dag. Lokatölur 4-1 gestunum frá Bæjaralandi í vil en staðan var orðin 3-0 eftir aðeins 12. mínútna leik. Gestirnir frá Bæjaralandi gerðu út um leikinn á fyrstu 12 mínútum hans. Eftir aðeins 3. mínútna leik hafði hinn pólski Robert Lewandowski komið knettinum í netið og tveimur mínútum eftir það var Kingsley Coman búinn að tvöfalda forystu gestanna. Hinn þýski Thomas Müller lagði upp fyrstu tvö mörk leiksins og er þar með kominn með 14 stoðsendingar í þýsku úrvalsdeildinni í vetur. Þá er Lewandowski búinn að skora 23 deildarmörk, í aðeins 22 leikjum. Það var svo á 12. mínútu sem Bæjarar gerðu út um leikinn en Serge Gnabry skoraði þá eftir sendingu Joshua Kimmich og staðan því orðin 3-0. Eftir það slökuðu gestirnir á klónni og kom næsta mark leiksins ekki fyrr en á 66. mínútu. Gnabry þá aftur á ferðinni. Skömmu síðar minnkaði Mark Uth muninn fyrir heimamenn og þar við sat. Öruggur 4-1 sigur Bayern staðreynd og þeir eru þar með komnir upp fyrir RB Leipzig í töflunni. Sigurinn þýðir að Bæjarar eru nú með 46 stig þegar 22 umferðum er lokið, stigi meira en RB Leipzig sem vann Werder Bremen 3-0 í gær. Köln eru á sama tíma í harðri fallbaráttu með 23 stig í 14. sæti deildarinnar, sex stigum fyrir ofan fallsæti.
Þýski boltinn Mest lesið Blaðamannafundi slitið snemma og Ísraelar brjálaðir Fótbolti Sjáðu þegar upp úr sauð á fundi Heimis Fótbolti Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Enski boltinn „Sorglegt fyrir íslenskan fótbolta“ Íslenski boltinn Étur hatt sinn vegna ummæla um Gylfa Fótbolti Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Handbolti Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Enski boltinn Er katastrófa að vinna ekki í dag? Fótbolti Bakgarðsáskorun: Stefnir hátt í síðasta Bakgarðshlaupinu sínu Sport Klopp býður við rasískum ásökunum Fótbolti Fleiri fréttir Sex breytingar: Aron Einar byrjar og Gylfi á bekkinn Ísland - Búlgaría | Tengir landsliðið saman tvo sigra? Lagði upp í öruggum sigri Sjáðu þegar upp úr sauð á fundi Heimis Klopp býður við rasískum ásökunum Er katastrófa að vinna ekki í dag? Blaðamannafundi slitið snemma og Ísraelar brjálaðir Étur hatt sinn vegna ummæla um Gylfa Sjáðu mörkin sem felldu Víking og Val Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Uppgjörið: Fram - Valur 1-2 | Valskonur fallnar í fyrsta sinn ,,Mikið í gangi í hausnum núna” „Sorglegt fyrir íslenskan fótbolta“ Uppgjörið: Víkingur R - Þór/KA 0-2 | Björguðu sér og sendu bæði Víking og Val niður um deild Mætti Ítölum tuttugu árum eftir að hafa skallað Materazzi Afmælisbarnið dregur sig úr landsliðinu Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Frakkland - Ítalía | Halda Frakkar sigurgöngunni áfram? Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ Sjáðu hvernig Portúgalar fóru með Dani eftir brotthvarf Ronaldo „Menn mega ekki vera of miklir töffarar“ Þurfum að vera óþolandi eins og Aron og Gylfi Sjáðu fund Arnars og Ísaks fyrir slaginn við Búlgaríu City-menn búnir að áfrýja Sveppi og mamma hans gætu séð tvö lið falla Daníel Tristan kallaður inn í A-landsliðið Ýtti við Jesus og fagnaði eins og Ronaldo Draumadagar Emelíu: Sjáðu fyrsta mark hennar í Meistaradeild Evrópu Heimir gáttaður á fyrstu spurningu: „Aftur? Allt í lagi…“ Kaup Messi á spænsku félagi staðfest Sjá meira