ÍBV og KA/Þór sprengdu upp baráttuna um úrslitakeppnissæti Sindri Sverrisson skrifar 22. febrúar 2020 16:10 Martha Hermannsdóttir skoraði 13 mörk gegn HK. Hér er hún á ferð í leik gegn HK fyrr í vetur. vísir/bára
ÍBV vann Stjörnuna 27-25 og KA/Þór hafði betur gegn HK, 33-31, í mikilvægum leikjum í baráttunni um sæti í fjögurra liða úrslitakeppni Olís-deildar kvenna í handbolta í dag. Fram jók forskot sitt á toppnum með sigri á Aftureldingu, 35-11. KA/Þór og ÍBV eru nú með 14 stig hvort lið, tveimur stigum á eftir HK sem er í 4. sætinu. Stjarnan er með 19 stig í 3. sæti og á góðri leið í úrslitakeppnina þegar þessi lið eiga fjóra leiki eftir. Darja Zecevic varði vel í marki ÍBV gegn Stjörnunni eða 40% skota sem hún fékk á sig. Ásta Björt Júlíusdóttir var markahæst Eyjakvenna með 8 mörk og Kristrún Ósk Hlynsdóttir gerði 5. Hjá Stjörnunni var Sólveig Lára Kjærnested markahæst með 7 mörk. Á Akureyri var Martha Hermannsdóttir markahæst en hún skoraði 13 mörk fyrir KA/Þór, þar af sjö af vítalínunni, og Ásdís Guðmundsdóttir skoraði úr öllum 5 skotum sínum. Hjá HK var Díana Kristín Sigmarsdóttir með 9 mörk og Sigríður Hauksdóttir 8. Topplið Fram jók forskot sitt á Val í fimm stig með öruggum sigri á stigalausu liði Aftureldingar, 35-11, í Mosfellsbæ. Valskonur eiga leik til góða við Hauka sem er að hefjast á Stöð 2 Sport. Allir útileikmenn Fram skoruðu í leiknum en Þórey Rósa Stefánsdóttir var markahæst með 6 mörk og þær Steinunn Björnsdóttir, Perla Ruth Albertsdóttir og Unnur Ómarsdóttir gerðu 5 mörk hver. Hjá heimakonum var Telma Rut Frímannsdóttir markahæst með 5 mörk.
Olís-deild kvenna Mest lesið Joshua kjálkabraut Paul Sport Tottenham - Liverpool | Meistararnir mæta til leiks án Salah Enski boltinn Gagnrýndi Paul: „Beið eftir að verða sleginn“ Sport Salah bað samherjana afsökunar Enski boltinn Rekinn af HM eftir að hafa fallið á lyfjaprófi Sport Lineker fokillur við blaðamann: „Þvílíkt kjaftæði“ Enski boltinn Chelsea vann upp tveggja marka forskot á St James' Park Enski boltinn Haaland frábær er Manchester City komst á toppinn Enski boltinn „Hann er ein stærsta ástæðan fyrir því“ Handbolti Skírði soninn LFC og Mac Allister lét draum feðganna rætast Enski boltinn Fleiri fréttir Donni fagnaði EM vali með skotsýningu Sigvaldi Björn fjarri góðu gamni í sjaldséðu tapi Kolstad Eva Björk með stórleik í fyrsta sigri Stjörnunnar „Hann er ein stærsta ástæðan fyrir því“ KA-menn fengu góða jólagjöf Flautumark hjá FH og ÍR með þeim í Höllina KA í undanúrslit á kostnað bikarmeistaranna Stærsti leikur ársins í Eyjum fer fram í kvöld „Er því miður kominn í jólafrí“ „Þetta var mjög skrítinn leikur“ Haukakonur í fjórða sætið KA/Þór - Valur 23-30 | Ótrúlegur viðsnúningur gestanna Ómar óstöðvandi og Magdeburg í undanúrslit Ómar Ingi fær meiri ábyrgð og tekur við kyndlinum af Aroni Ekkert stríð við Porto og einstakur Þorsteinn nítjándi maður Síðasta verkefni reyndist dýrt fyrir Sigvalda Teitur fer á EM sem hornamaður í stað Sigvalda Snorri kynnti EM-strákana okkar Hleyptu Þorsteini ekki heim og vilja ekki að hann fari á EM Kári og Logi vilja henda Ými út úr landsliðinu Sagður utan hóps fyrir Bjarka og Orra Geggjaðar Eyjakonur á toppinn Þorsteinn Leó að ná sér „langt á undan áætlun“ Birtu tölvupóst þar sem efast er um heilsu forseta IHF Valdi ekki eigin leikmann í landsliðið Halda Orra og Sporting engin bönd Viktor Gísli stóð vaktina er fullkomið gengi Börsunga hélt áfram Snorri kynnir EM-fara í vikunni Mega handvelja lið utan Evrópu inn í Meistaradeildina EM ekki í hættu Sjá meira