Ingibjörg Arnarsdóttir nýr framkvæmdastjóri hjá Isavia Samúel Karl Ólason skrifar 26. nóvember 2020 10:54 Ingibjörg Arnarsdóttir. Ingibjörg Arnarsdóttir hefur verið ráðin í stöðu framkvæmdastjóra á nýju sameinuðu svið fjármála og mannauðs hjá Isavia.
Ingibjörg Arnarsdóttir hefur verið ráðin í stöðu framkvæmdastjóra á nýju sameinuðu svið fjármála og mannauðs hjá Isavia. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Isavia þar sem einnig segir að Ingibjörg hafi mikla stjórnunarreynslu á vettvangi fjármála og mannauðs. Nú síðast hafi hún starfað sem framkvæmdastjóri fjármala-, mannauðs og verkefnastjórnar hjá Reiknistofu bankanna og haft þar yfirumsjón með fjármálum fyrirtækisins, mannauðsmálum og verkefnastýringu. Ingibjörg starfaði þar áður hjá Valitor, fyrst sem framkvæmdastjóri fjármálasviðs og síðan sem framkvæmdastjóri stjórnunar- og mannauðs. Hún er með Cand. Oecon. gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands með áherslu á endurskoðun og meistaragráðu í fjármálum frá Cass Business School/City University í London. Svið fjármála og mannauðs hjá Isavia er önnur tveggja stoðeininga sem er hluti af móðurfélagi Isavia, sem annast rekstur Keflavíkurflugvallar. Sviðið sinnir þó jafnframt samstæðu Isavia í heild sinni. „Við hjá Isavia hlökkum til að fá Ingibjörgu til starfa,“ segir Sveinbjörn Indriðason, forstjóri Isavia í áðurnefndri tilkynningu. „Það er ljóst að þekking hennar og reynsla, nú síðast hjá Valitor og Reiknistofu bankanna, mun koma Isavia til góða í þeim verkefnum sem fram undan eru.“ Ingibjörg tekur sæti í framkvæmdastjórn Isavia og hefur störf þann 1. desember næstkomandi.
Vistaskipti Mest lesið Greiða hundruð milljóna króna sekt Viðskipti innlent Guðný Helga tekur við af Haraldi Viðskipti innlent Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Viðskipti innlent Aðskotahlutur fannst í kanilsykurspoka Neytendur Níu systkini, móðir um tvítugt og símtalið sem ekkert foreldri vill fá Atvinnulíf Norskir fjölmiðlar í hart við Meta Viðskipti erlent Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Viðskipti innlent Eigin samastaður í Reykjavík án þess að kaupa heila íbúð Samstarf Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Viðskipti innlent Kaldvík fær enn frekari frest Viðskipti innlent Fleiri fréttir Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Sjá meira