Erlent

Samnings­aðilar svart­sýnir fyrir loka­daginn

Sylvía Hall skrifar
Boris Johnson ferðaðist til Brussel fyrr í vikunni til að funda með Ursulu von der Leyen.
Boris Johnson ferðaðist til Brussel fyrr í vikunni til að funda með Ursulu von der Leyen. EPA/olivier hoslet

Boris Johnson forsætisráðherra Bretlands og Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, munu hittast síðar í dag og reyna að ná viðskiptasamningi sem tæki gildi eftir að aðlögunarferli Breta lýkur um áramót. Litlu hefur verið áorkað í samningaviðræðum undanfarna daga.

Samningsaðilar sömdu fyrr í vikunni um að reyna að ganga frá deilumálum í síðasta lagi í dag. Ef það gengi ekki yrði í kjölfarið tekin ákvörðun um hvort viðræðum skyldi slitið eða haldið áfram. Von der Leyen hefur sjálf sagt að útlit sé fyrir að samkomulag muni ekki nást á milli deiluaðila, að því er fram kemur í frétt breska ríkisútvarpsins.

Erfiðlega hefur gengið hjá Bretum og Evrópusambandinu að ná samkomulagi um fiskveiðar og samkeppnisreglur, en Johnson hefur sagt að Evrópusambandið þurfi að breyta afstöðu sinni svo um munar til þess að samkomulag náist. Telja Bretar nauðsynlegt að hafa fulla stjórn á fiskimiðum sínum í skjóli fullveldisréttar síns.

Fjögur eftirlitsskip breska sjóhersins verða í viðbragðsstöðu frá og með 1. janúar til þess að vernda fiskveiðisvæði Bretlands ef engir samningar nást milli Bretlands og Evrópusambandsins.

Annað stórt ágreiningsmál er hvort Bretum eigi að vera skylt að fylgja stefnu Evrópusambandsins upp að vissu marki er varðar efnahagsmál. Sambandinu þyki óásættanlegt að Bretar geti hagnast á því að hafa frjálsan aðgang að mörkuðum Evrópusambandsins án þess að þurfa að uppfylla sömu kröfur og fylgja sömu reglum er varðar samkeppni og vinnumarkaðslöggjöf.

Þá greinir aðila á um hvort lögsaga Evrópudómstólsins eigi að ná til mögulega deilna sem upp gætu komið í framtíðinni varðandi viðskipti Breta og Evrópusambandsins.

Landssamband bænda í Bretlandi hefur varað við því að það muni hafa gríðarleg áhrif á iðnað þeirra ef samningar nást ekki, enda innri markaður Evrópusambandsins þeim mikilvægur. Því væri nauðsynlegt að ná einhvers konar samkomulagi til þess að tryggja útflutning til annarra Evrópuþjóða.


Tengdar fréttir

Telur tölu­verðar líkur á að samningar náist ekki

Boris Johnson forsætisráðherra Bretlands segir bæði almenning og fyrirtæki þurfa að búa sig undir það að samningaviðræður Breta og Evrópusambandsins beri ekki árangur. Fundi þeirra Johnson og Ursulu von der Leyen, forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, lauk í gærkvöld án niðurstöðu.

Munu freista þess að tryggja óhindraðar samgöngur og fiskveiðar

Evrópusambandið hefur gefið út viðbragðsáætlun sem gripið verður til ef fer sem horfir og aðlögunartímabilinu í kjölfar Brexit lýkur án samnings. Áætlunin miðar að því að tryggja samgöngur milli Bretlands og Evrópu og áframhaldandi veiðar.

Fundinum í Brussel lokið án niðurstöðu

Fundi Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands og Ursulu von der Leyen, forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, í Brussel er lauk í kvöld án niðurstöðu. Ennþá ber mikið í milli í samningaviðræðum Bretlands og Evrópusambandsins um viðskiptasamning sem markmiðið var að ná fyrir áramót. Viðræðurnar virðast vera í algjörum rembihnút.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×