Sjúklingum með kórónuveiruna gefið malaríulyf á Landspítala Eiður Þór Árnason skrifar 25. mars 2020 12:32 Bryndís Sigurðardóttir, smitsjúkdómalæknir á Landspítalanum. Vísir
Mikill skortur er nú á nauðsynlegum hlífðarfatnaði fyrir heilbrigðisstarfsfólk víða um heim en að sögn Bryndísar Sigurðardóttur smitsjúkdómalæknis þarf ekki að hafa áhyggjur af skorti hér á landi eins og staðan er í dag. Fólk sem er lagt inn á Landspítala vegna kórónuveirunnar er nú gefið malaríulyf sem vonast er til að nýtist í baráttunni við COVID-19 sjúkdóminn sem veiran veldur. Smitsjúkdómadeild Landspítalans í Fossvogi hefur verið breytt í eina stóra COVID-19 deild og er það meðal annars gert til þess að spara hlífðarfatnað. „Þetta verða þá kannski fimmtán til sautján sjúklingar og við þurfum þá ekki að fara alltaf aftur úr grímunni, gleraugunum og hárnetinu, þannig að það kemur til með að nýtast vel,“ sagði Bryndís í morgunþættinum Bítinu. Skelfilegt ástand á sumum stórum háskólasjúkrahúsum Hún segir alvarlegt ástand vera á mörgum erlendum sjúkrahúsum vegna skorts á þessum nauðsynlega búnaði. „Við viljum meina að við séum með nægan hlífðarbúnað eins og er og við þökkum fyrir það þar sem við höfum heyrt skelfilegar sögur, meira að segja af stórum háskólaspítölum bæði í London og Bandaríkjunum, sem eru alveg með ólíkindum.“ „Þetta eru ekki einhverjir sveitaspítalar, þetta eru stórir háskólaspítalar þar sem að læknar eru beðnir um að vera grímuna í heilan dag og jafnvel lengur, þangað til hún er orðin sjáanlega óhrein og það er verið að endurnýta fatnaðinn.“ Starfsfólk Landspítalans er vel búið á tímum kórónuveirunnar.Vísir/vilhelm Gefa sjúklingum malaríulyf sem verið hefur til umræðu Öflugt úthringteymi sérfræðinga sér um að tilkynna fólki um smit og fylgist náið með því í framhaldinu. Mikið álag er á starfsfólki Landspítalans um þessar mundir og segir Bryndís að læknar hafi verið að skoða einstaklinga fram á kvöld í gær. „Þar voru læknar að skoða fólk til átta í gærkvöldi og sumir þeirra þurftu innlögn, þurftu súrefni, frekara mat og hjúkrun, þannig að þeir eru þá lagðir inn og eru settir á þessi sýklalyf sem talað hefur verið um, malaríulyf og jafnvel önnur lyf. Umrætt malaríulyf hefur verið nokkuð til umfjöllunar að undanförnu en Bryndís segir að enn sé mjög erfitt að segja til um það hvort sú meðferð sýni árangur gagnvart COVID-19. „Við höfum verið að fylgjast með bæði upplýsingum sem eru að koma frá Evrópu og Bandaríkjunum og það eru svona skiptar skoðanir um það hversu gott þetta lyf er. Þetta er mjög lítil rannsókn sem allir eru að tala um.“ Hún segir að niðurstöður þeirrar rannsóknar bendi til þess að sjúklingar sem fái lyfið losi sig við veiruna fyrr en ella. Einnig er verið að prófa að nota önnur lyf sem séu nú þegar á markaði og fleiri eru til skoðunar. Ágætlega gengið að vernda starfsfólk Ágætlega hefur gengið að vernda heilbrigðisstarfsfólk hér á landi fyrir sýkingu að mati Bryndísar. „Það koma náttúrulega upp tilvik þar sem fólk er að birtast með ódæmigerða birtingarmynd [veirunnar]. Þetta eru kannski kviðverkir, niðurgangur eða gífurlegur slappleiki.“ Þá hafi verið dæmi um að læknar í heimahúsi, á heilsugæslu eða á bráðamóttöku átti sig ekki strax á því að um sé að ræða kórónuveirusýkta einstaklinga. „Þá fara þeir heilbrigðisstarfsmenn í sóttkví sem voru í mikill nánd og snertingu við þessa einstaklinga. Það hefur gerst og mun gerast, maður þarf bara að átta sig á því að svona er þetta bara.“ Byrja yfirleitt að finna fyrir pirringi í hálsi Bryndís segist hafa rætt um veiruna við marga lækna upp á Landspítalanum sem segja sýkta sjúklinga oft fyrst finna fyrir einkennum í hálsi. „Það virðist byrja sem kitl eða pirringur eða ertingur í hálsinum. Sumir eru til dæmis ekkert með hita en eru bara gífurlega slappir. Enn aftur börn virðast koma mjög vel út úr þessu þó þau hafi greinst með veiruna þá eru þau mjög lítið veik.“ Hún segir tölur frá stærri ríkjum á borð við Þýskaland þar sem dánartíðni hefur verið mun lægri en á Spáni og Ítalíu vera góðar fréttir fyrir Íslendinga. Mikill viðbúnaður er á Landspítalanum.vísir/vilhelm „Við erum í svolítið svipaðri stöðu vonandi og Þýskaland. Þar var kannski ungt hraust fólk sem fór á skíði til Ítalíu og kom með veiruna til baka inn til Þýskalands og þar að auki voru Þjóðverjar, eins og við, svolítið undirbúin. Við vorum byrjuð að undirbúa okkur mjög vel áður en veiran fer í dreifingu í þjóðfélaginu og þetta er öfugt til dæmis við Ítalíu og Spán að mínu mati.“ Meira sé um sýkingar hjá eldra fólki á Spáni og Ítalíu þar sem ríkir nú skelfilegt ástand. Hér á landi sé veiran ekki komin inn á öldrunarstofnanir og aldraðir virðist ekki vera að sýkjast mikið. „Þetta er upp til hópa frekar ungt og aktíft fólk enn þá og þess vegna er þetta samkomubann og þessi rakning og þessi greining og þessi sóttkví, enn þá svo ofboðslega mikilvægt tæki til að forða viðkvæmum hópum frá sýkingunni.“
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Landspítalinn Heilbrigðismál Bítið Mest lesið Rúmeninn náði 160 milljónum króna af Arion banka Innlent Framkvæmdastjóri Hopp vill ráða sófakappana Innlent Stór hópur foreldra taki skólaskyldu ekki alvarlega Innlent Hafi svikið tugi milljóna úr íslenskum banka Innlent Ók gegn rauðu ljósi þegar kona á níræðisaldri lést Innlent Ungmenni á „krossurum“ elt heim með dróna Innlent Keypti bíl fyrir peningana og flúði land með Norrænu Innlent Hafna því að hantaveiran hafi borist frá hjara veraldar Erlent Ungmenni réðust að konu með höggum og spörkum í Mjóddinni Innlent Flugi seinkað vegna forfalla í áhöfn Innlent Fleiri fréttir Ungmenni réðust að konu með höggum og spörkum í Mjóddinni Bíða með breytingar eftir liðsskipti Helga Áss fram yfir kosningar Hátt í 40 prósenta aukning í kosningaþátttöku utan kjörfundar Stjórnsýslan hafi lagt undir sig landið og miðin „Mér finnst það ekki siðferðislega rétt“ Ók gegn rauðu ljósi þegar kona á níræðisaldri lést Keypti bíl fyrir peningana og flúði land með Norrænu Rúmenskur bankaræningi og margir kjósa utan kjörstaðar Flugi seinkað vegna forfalla í áhöfn Vilja sinna löggæslu í Grímsey og Hrísey með drónum Vilja fjölga hólmum í Reykjavíkurtjörn og friðlýsa fjöru við Skerjafjörð og Ægisíðu „Ekki frekar en þegar Dagur var í framboði“ Framkvæmdastjóri Hopp vill ráða sófakappana Sjö vilja embætti skólameistara FB Stór hópur foreldra taki skólaskyldu ekki alvarlega Rúmeninn náði 160 milljónum króna af Arion banka Ungmenni á „krossurum“ elt heim með dróna Hafi svikið tugi milljóna úr íslenskum banka Golfkúlum rigndi yfir bílaumboð og ekki í fyrsta sinn „Allt aðrar kröfur um eitthvað sem er sprautað inn í líkamann“ „Kynþáttaraunhyggjumaður“ flutti ræðu á viðburði Ungra miðflokksmanna Sé gríðarlega neikvætt fyrir samfélagið í heild sinni Bilið breikkar og breikkar með árunum „Engar raunverulegar breytingar sem hafa átt sér stað“ Íbúi á Tenerife um hantaveiruskipið og frelsissvipt börn Á þriðja hundrað manns æfði viðbrögð við flugslysi „Ég get sýnt þér leiðina að árangri en það er þitt að fara hana“ Læsi, ESB-leynimakk, Landeyjahöfn og húsnæðismál Handtekinn á skemmtistað með þrjú ungmenni Einars Ólafssonar minnst í Lúxemborg Sjá meira