City afgreiddi Birmingham í fyrri hálfleik

Anton Ingi Leifsson skrifar
City menn eru þægilega komnir áfram í 32 liða úrslitin.
City menn eru þægilega komnir áfram í 32 liða úrslitin. Victoria Haydn/Getty

Kevin De Bruyne, Phil Foden, Bernardo Silva og Kyle Walker. Þetta voru á meðal þeirra leikmanna sem voru í byrjunarliði Man. City sem vann 3-0 sigur á Birmingham í enska bikarnum í dag.

Pep Guardiola, stjóri Man. City, er þekktur fyrir að fara langt í bikarkeppnunum og hann sýndi enga miskunn er hann mætti B-deildarliðinu í dag.

City afgreiddi leikinn í fyrri hálfleik. Bernardo Silva skoraði fyrsta markið á áttundu mínútu og Portúgalinn bætti við öðru marki sínu og City sjö mínútum síðar.

Phil Foden skoraði þriðja markið á 33. mínútu og þar við sat. City sigldi sigrinum þægilega í höfn og verða í hattinum er dregið verður í 32-liða úrslitin annað kvöld.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira