Einkunnir strákanna okkar á móti Noregi: Gísli Þorgeir bestur Íþróttadeild skrifar 24. janúar 2021 19:50 Það var mjög gaman að sjá Gísla Þorgeir Kristjánsson tæta í sig norsku varnarmennina í kvöld. EPA-EFE/Anne-Christine Poujoulat / Gísli Þorgeir Kristjánsson lét varnarmenn Norðmanna líta oft illa út í kvöld og stýrði sóknarleik íslenska liðsins sem leit aldrei betur út á þessu heimsmeistaramóti en í hörkuleik á móti sterku norsku liði í kvöld. Íslenska handboltalandsliðið tapaði með tveimur mörkum á móti Norðmönnum, 33-35, í lokaleik sínum í milliriðli á heimsmeistaramótinu í Egyptalandi. Íslensku strákarnir enduðu heimsmeistaramótið í Egyptalandi með góðri frammistöðu á móti sterku norsku liði. Norðmenn voru ekki öruggir með sigurinn fyrr en í blálokin og barátta íslenska liðsins var til mikillar fyrirmyndar. Íslenska liðið hefur spilað vel á móti stórþjóðunum Frakklandi og Noregi en hefur vantað herslumuninn í báðum leikjum. Varnarleikurinn hefur verið frábær á mótinu en flugbeittur og hraður sóknarleikur Norðmanna skapaði vissulega talsvert meiri vandræði fyrir strákana okkar í leiknum í kvöld. Sóknarleikur íslenska liðsins, með Gísli Þorgeir Kristjánsson í fararbroddi, gekk aftur á móti mjög vel og var aldrei betri á þessu heimsmeistaramóti en einmitt í kvöld. Gísli var líka besti leikmaður íslenska liðsins og fær fullt hús. Ólafur Guðmundsson, Ýmir Örn Gíslason og Elliði Snær Viðarsson stimpluðu sig allir inn á þessu móti og þeir fá fimmu fyrir frammistöðuna á móti Noregi. Leikmenn og þjálfarar fá einkunn á bilinu 1-6 með umsögn, en neðst í fréttinni má sjá hvað hver einkunn þýðir. Einkunnir Íslands gegn Noregi: - Byrjunarlið Íslands í leiknum - Viktor Gísli Hallgrímsson, mark - 4 (10/1 varin skot- 32:48 mín.) Viktor Gísli fékk tækifærið og var með 29 prósent markvörslu sem þarf að vera betra. Það dylst engum sem á horfir að hann er feikilega mikið efni. Með fleiri leikjum og meiri reynslu þá þurfum við ekki að hafa áhyggjur af markvörslu íslenska liðsins. Það er deginum ljósara að Viktor Gísli er á leið í fremstu röð. Bjarki Már Elísson, vinstra horn - 3 (6/3 mörk - 56:52 mín.) Bjarki hefur átt góða leiki með íslenska liðinu í Egyptalandi. Í leiknum í dag, lokaleik íslenska liðsins, hengdi hann haus og missti einbeitingu sem er ekki er boðlegt hjá manni með hans kunnáttu og getu. Aftur lendir hann í því að fara með góð færi á mikilvægum augnablikum. Það er einfaldlega ekki boðlegt á stóra sviðinu. Ólafur Guðmundsson, vinstri skytta - 5 (4 mörk - 52:02 mín.) Ólafur skilaði sínu á þessu móti hnökralítið. Var óheppnin með skot í leiknum gegn Noregi, hætti aldrei og ljóst að mun meiri yfirvegun er í öllum hans leik en við höfum áður séð. Þetta er sá Ólafur sem menn hafa verið að bíða eftir frá árinu 2010. Gísli Þorgeir Kristjánsson, leikstjórnandi - 6 (4 mörk - 29:45 mín.) Gísli Þorgeir sýndi og sannaði að hann er afburðarleikmaður. Hann tætti í sig vörn Norðmanna sem er eitt af bestu liðum heims. Leikskilningur Gísla er í hæsta gæðaflokki. Þetta er leikmaður sem mun komast í fremstu röð á komandi árum. Það er í raun sárgrætilegt að hann hafi meiðst á sínum tíma sem augljóslega hefur tafið hans möguleika með íslenska landsliðinu. Kristján Örn Kristjánsson, hægri skytta - 2 (1 mark - 9:13 mín.) Kristján fékk að byrja leikinn og byrjaði af krafti. Hann missti hins vegar einbeitinguna og kannski eðlilega. Hann hefði þurft meira traust á mótinu. Hæfileikarnir leyna sér ekki en þá þarf að virkja og það er hlutverk þjálfarateymis íslenska landsliðsins. Sigvaldi Guðjónsson, hægra horn - 4 (3 mörk - 56:33 mín.) Sigvaldi skilaði sínu gegn leikmönnum sem hann þekkir út og inn enda lék hann í Noregi um árabil. Skilaði fínu verki í leiknum. Enn og aftur bíðum við eftir stórleiknum sem hlýtur að koma. Einn flinkasti hornamaður sem við Íslendingar höfum eignast. Þetta er þarna allt og það þarf bara að galdra það fram. Elliði Snær Viðarsson, lína - 5 (4 mörk - 40:05 mín.) Elliði er einhver mesti orkubolti sem íslenska landsliðið hefur fengið í fangið á síðustu árum. Engum dylst sem fylgst hefur með mótinu í Egyptalandi að Elliði er búinn að eigna sér línumannsstöðuna í landsliðinu. Það er hins vegar ljóður á leik Elliða að aginn á stundum er ekki til staðar. Úr því þarf hann að bæta á næstu árum. Ýmir Örn Gíslason, vörn - 5 (5 stopp - 36:39 mín.) Ýmir var að öðrum ólöstuðum einn besti leikmaður íslenska liðsins á heimsmeistaramótinu í Egyptalandi. Orkan frá Ými er áþreifanleg í leikjum íslenska liðsins. Orðinn leiðtogi í íslenska liðinu. Takið eftir, hann á mikið inni ennþá og mun bæta sig á næstu tveimur árum í einu besta liði heims. Hataður af andstæðingunum en elskaður af samherjum og Íslendingum. - Menn sem komu inn af bekknum í leiknum - Ómar Ingi Magnússon, hægri skytta - 4 (4 mörk - 49:35 mín.) Ómar Ingi hefur átt erfitt uppdráttar á mótinu í Egyptalandi. Hæfileikarnir hreinlega leka af Ómari. Leikskilningur í fyrsta klassa en hann þarf meiri hjálp og stuðning frá þeim sem honum stjórna. Ómar mun á næstu árum verða óborganlegur hlekkur í vegferð íslenska liðsins á toppinn. Arnar Freyr Arnarsson, lína - 4 (3 mörk - 28:48 mín.) Arnar Freyr átti gott mót í Egyptalandi. Það lætur ekki mikið yfir Arnari en vinnusemin og dugnaðurinn er algjörlega til fyrirmyndar. Verður fastamaður á næstu árum. Vonandi verður hann í hópnum þegar þetta lið hámarkar árangurinn sinn. Það er stutt í það. Magnús Óli Magnússon, leikstjórnandi - 3 (1 mark - 2:53 mín.) Magnús Óli var með á sínu fyrsta stórmóti. Fékk hins vegar afar lítinn spilatíma til að sýna sig og sanna. Enginn efast um hæfileikana en nú er það Magnúsar að taka skrefið enn lengra. Þar er Olís deildin hans vettvangur. Ágúst Elí Björgvinsson, mark - 3 (5 varin skot - 13:01 mín.) Kom inn í markið í lokin. Var með 42 prósent markvörslu sem er alls ekki slæmt. Stóð sig kannski betur í þessum leikjum sem íslenska liðið hefur spilað en margir þorðu að vona. Veitir öðrum markvörðum íslenska liðsins aðhald og samkeppni. Oddur Grétarsson, vinstra horn - spilaði of lítið Björgvin Páll Gústavsson, mark - spilaði of lítið Kári Kristjánsson, lína - spilaði ekki Elvar Örn Jónsson, vinstri skytta - spilaði ekki Guðmundur Guðmundsson, þjálfari - 4 Guðmundur hefur verið með vindinn í fangið á heimsmeistaramótinu í Egyptalandi. Hann fær plús fyrir sóknarleik íslenska liðsins í tveimur síðustu leikjum. Varnarleikurinn er kominn í gott stand. Hins vegar verður að setja spurningarmerki við spennustig íslenska liðsins í leikjunum á móti Portúgal og Sviss. Íslenska liðið virkaði yfirspennt og hver getur stýrt því annar en þjálfarinn. Guðmundur tók við fyrir rúmum þremur árum. Hans markmið hefur verið að koma íslenska liðinu í fremstu röð á nýjan leik. Verkið er hálfnað en auðvitað er margt sem betur má fara. Þjálfarinn hefur verið að munnhöggvast við álitsgjafa á meðan mótinu stóð. Slíkt er engan veginn ásættanlegt. Útskýring á einkunnum: 6 - Heimsklassa frammistaða 5 - Frábær frammistaða 4 - Góð frammistaða 3 - Sæmileg frammistaða - skilaði sínu 2 - Ekki nógu góð frammistaða 1 - Slakur leikur HM 2021 í handbolta Tengdar fréttir Einkunnir á móti Frakklandi: Viggó bestur eftir stórbrotinn seinni hálfleik Íslensku strákarnir voru klárir í slaginn á móti sterku liði Frakka sem hefur enn ekki tapað á heimsmeistaramótinu til þessa. Endaspretturinn var ekki alveg nógu góður en margir í íslenska liðinu voru að spila vel í kvöld. 22. janúar 2021 19:43 Einkunnir strákanna okkar á móti Sviss: Ýmir í heimsklassa og var langbestur Ýmir Örn Gíslason sýndi heimsklassa frammistöðu í miðri vörn íslenska liðsins á móti Sviss en það dugði ekki liðinu að fá bara tuttugu mörk á sig, því sóknin kolféll á prófinu. 20. janúar 2021 17:20 Einkunnir strákanna okkar á móti Marokkó: Viggó og Ólafur bestir Bestu menn íslenska liðsins í kvöld eiga það sameiginlegt að hafa unnið sér inn meiri spilatíma með flotti frammistöðu á HM í handbolta í leikjum íslenska liðsins í riðlakeppninni. 18. janúar 2021 22:05 Einkunnir strákanna okkar á móti Alsír: Gísli og Bjarki bestir af mörgum góðum Það voru margir að spila vel í íslenska landsliðinu í stórsigri á Alsírbúum og tveir leikmenn fengu fullt hús í einkunnagjöf okkar. 16. janúar 2021 22:05 Einkunnir strákanna okkar á móti Portúgal: Bjarki og Ýmir bestir í kvöld Vísir fór eins og vanalega yfir frammistöðu íslensku strákanna í leiknum í kvöld. 14. janúar 2021 22:11 Mest lesið Þorlákur sagði upp störfum hjá ÍBV Íslenski boltinn Klæðnaður Mo Salah á bekknum vakti athygli Enski boltinn Setja fyrirliða sinn í bann fyrir lélegt viðhorf Fótbolti Sáttur eftir góðan sigur: „Fannst allir leggja í púkkið“ Handbolti Fimmtán tekjuhæstu íþróttakonur heims allar með meira en milljarð Sport Þurfa að hlífa henni við fjölmiðlum vegna heilaþreytu Sport Uppgjörið: Haukar - KA 42-38 | Markaflóð á Ásvöllum Handbolti Wirtz fékk ekki markið skráð á sig og nýliðarnir fögnuðu á Anfield Enski boltinn Viktor Bjarki heldur áfram að slá í gegn Fótbolti Brasilíumenn byrja vel undir stjórn Menezes - myndband Fótbolti Fleiri fréttir Sáttur eftir góðan sigur: „Fannst allir leggja í púkkið“ „Vorum orðnir súrir á löppunum“ Uppgjörið: Haukar - KA 42-38 | Markaflóð á Ásvöllum Hannes tryggði sigurinn með tíunda markinu sínu Andrea mun ekki spila á HM „Hún flutti út í eina nótt en svo var hún bara komin aftur“ „Slepptum ræktinni í dag og fórum í sundleikfimi“ Skýrsla Ágústs: Svart var það sannarlega og sést vonandi aldrei aftur Þær þýsku of sterkar fyrir þær færeysku „Ekki sama leikgleði og hefur verið“ „Mjög margt“ sem fór úrskeiðis „Átta liða úrslit hefði verið eitthvað kraftaverk“ Sjötta tap Framara í röð en Birgir Steinn í Evrópustuði „Helvíti svart var það í dag“ Uppgjörið: Ísland - Svartfjallaland 27-36 | Þungur róður í Dortmund Ótrúlegur viðsnúningur Íslandsbananna gegn Spáni Matthildur Lilja utan hóps í fyrsta leik milliriðilsins Sjö nýliðar í stóra EM-hópnum hans Snorra Aldís Ásta ólétt og flytur heim til Íslands „Við getum tekið þá alla“ „Mæta bara strax og lemja á móti“ Sandra markahæst í íslenska liðinu í riðlakeppninni Norðmenn og Danir kláruðu sitt en Svíar klikkuðu Bakslag á fyrstu æfingunni í Dortmund Felldi félaga sinn úr íslenska U19-landsliðinu Leiktímarnir í milliriðlinum klárir Skýrsla Ágústs: Góðir möguleikar í milliriðlinum „Eiga eftir að hjálpa okkur helling og skila okkur miklu“ „Það kom aldrei neitt annað til greina“ „Alltaf gaman að fara upp og negla“ Sjá meira
Útskýring á einkunnum: 6 - Heimsklassa frammistaða 5 - Frábær frammistaða 4 - Góð frammistaða 3 - Sæmileg frammistaða - skilaði sínu 2 - Ekki nógu góð frammistaða 1 - Slakur leikur
HM 2021 í handbolta Tengdar fréttir Einkunnir á móti Frakklandi: Viggó bestur eftir stórbrotinn seinni hálfleik Íslensku strákarnir voru klárir í slaginn á móti sterku liði Frakka sem hefur enn ekki tapað á heimsmeistaramótinu til þessa. Endaspretturinn var ekki alveg nógu góður en margir í íslenska liðinu voru að spila vel í kvöld. 22. janúar 2021 19:43 Einkunnir strákanna okkar á móti Sviss: Ýmir í heimsklassa og var langbestur Ýmir Örn Gíslason sýndi heimsklassa frammistöðu í miðri vörn íslenska liðsins á móti Sviss en það dugði ekki liðinu að fá bara tuttugu mörk á sig, því sóknin kolféll á prófinu. 20. janúar 2021 17:20 Einkunnir strákanna okkar á móti Marokkó: Viggó og Ólafur bestir Bestu menn íslenska liðsins í kvöld eiga það sameiginlegt að hafa unnið sér inn meiri spilatíma með flotti frammistöðu á HM í handbolta í leikjum íslenska liðsins í riðlakeppninni. 18. janúar 2021 22:05 Einkunnir strákanna okkar á móti Alsír: Gísli og Bjarki bestir af mörgum góðum Það voru margir að spila vel í íslenska landsliðinu í stórsigri á Alsírbúum og tveir leikmenn fengu fullt hús í einkunnagjöf okkar. 16. janúar 2021 22:05 Einkunnir strákanna okkar á móti Portúgal: Bjarki og Ýmir bestir í kvöld Vísir fór eins og vanalega yfir frammistöðu íslensku strákanna í leiknum í kvöld. 14. janúar 2021 22:11 Mest lesið Þorlákur sagði upp störfum hjá ÍBV Íslenski boltinn Klæðnaður Mo Salah á bekknum vakti athygli Enski boltinn Setja fyrirliða sinn í bann fyrir lélegt viðhorf Fótbolti Sáttur eftir góðan sigur: „Fannst allir leggja í púkkið“ Handbolti Fimmtán tekjuhæstu íþróttakonur heims allar með meira en milljarð Sport Þurfa að hlífa henni við fjölmiðlum vegna heilaþreytu Sport Uppgjörið: Haukar - KA 42-38 | Markaflóð á Ásvöllum Handbolti Wirtz fékk ekki markið skráð á sig og nýliðarnir fögnuðu á Anfield Enski boltinn Viktor Bjarki heldur áfram að slá í gegn Fótbolti Brasilíumenn byrja vel undir stjórn Menezes - myndband Fótbolti Fleiri fréttir Sáttur eftir góðan sigur: „Fannst allir leggja í púkkið“ „Vorum orðnir súrir á löppunum“ Uppgjörið: Haukar - KA 42-38 | Markaflóð á Ásvöllum Hannes tryggði sigurinn með tíunda markinu sínu Andrea mun ekki spila á HM „Hún flutti út í eina nótt en svo var hún bara komin aftur“ „Slepptum ræktinni í dag og fórum í sundleikfimi“ Skýrsla Ágústs: Svart var það sannarlega og sést vonandi aldrei aftur Þær þýsku of sterkar fyrir þær færeysku „Ekki sama leikgleði og hefur verið“ „Mjög margt“ sem fór úrskeiðis „Átta liða úrslit hefði verið eitthvað kraftaverk“ Sjötta tap Framara í röð en Birgir Steinn í Evrópustuði „Helvíti svart var það í dag“ Uppgjörið: Ísland - Svartfjallaland 27-36 | Þungur róður í Dortmund Ótrúlegur viðsnúningur Íslandsbananna gegn Spáni Matthildur Lilja utan hóps í fyrsta leik milliriðilsins Sjö nýliðar í stóra EM-hópnum hans Snorra Aldís Ásta ólétt og flytur heim til Íslands „Við getum tekið þá alla“ „Mæta bara strax og lemja á móti“ Sandra markahæst í íslenska liðinu í riðlakeppninni Norðmenn og Danir kláruðu sitt en Svíar klikkuðu Bakslag á fyrstu æfingunni í Dortmund Felldi félaga sinn úr íslenska U19-landsliðinu Leiktímarnir í milliriðlinum klárir Skýrsla Ágústs: Góðir möguleikar í milliriðlinum „Eiga eftir að hjálpa okkur helling og skila okkur miklu“ „Það kom aldrei neitt annað til greina“ „Alltaf gaman að fara upp og negla“ Sjá meira
Einkunnir á móti Frakklandi: Viggó bestur eftir stórbrotinn seinni hálfleik Íslensku strákarnir voru klárir í slaginn á móti sterku liði Frakka sem hefur enn ekki tapað á heimsmeistaramótinu til þessa. Endaspretturinn var ekki alveg nógu góður en margir í íslenska liðinu voru að spila vel í kvöld. 22. janúar 2021 19:43
Einkunnir strákanna okkar á móti Sviss: Ýmir í heimsklassa og var langbestur Ýmir Örn Gíslason sýndi heimsklassa frammistöðu í miðri vörn íslenska liðsins á móti Sviss en það dugði ekki liðinu að fá bara tuttugu mörk á sig, því sóknin kolféll á prófinu. 20. janúar 2021 17:20
Einkunnir strákanna okkar á móti Marokkó: Viggó og Ólafur bestir Bestu menn íslenska liðsins í kvöld eiga það sameiginlegt að hafa unnið sér inn meiri spilatíma með flotti frammistöðu á HM í handbolta í leikjum íslenska liðsins í riðlakeppninni. 18. janúar 2021 22:05
Einkunnir strákanna okkar á móti Alsír: Gísli og Bjarki bestir af mörgum góðum Það voru margir að spila vel í íslenska landsliðinu í stórsigri á Alsírbúum og tveir leikmenn fengu fullt hús í einkunnagjöf okkar. 16. janúar 2021 22:05
Einkunnir strákanna okkar á móti Portúgal: Bjarki og Ýmir bestir í kvöld Vísir fór eins og vanalega yfir frammistöðu íslensku strákanna í leiknum í kvöld. 14. janúar 2021 22:11