Gylfi með stoðsendinguna er Everton komst upp að hlið Liverpool Anton Ingi Leifsson skrifar 1. mars 2021 21:53 Gylfi í baráttunni í leiknum i kvöld. Gareth Copley/Getty Images Gylfi Þór Sigurðsson lagði upp sigurmark Everton er liðið vann 1-0 sigur á Southampton í síðasta leik helgarinnar í enska boltanum. Gylfi Þór var aftur kominn í byrjunarlið Everton í kvöld eftir að byrjað á bekknum og komið inn á og skorað í 2-0 sigrinum á Liverpool um síðustu helgi. Richarlison kom Everton yfir á níundu mínútu. Boltinn féll fyrir Gylfa Þór sem gaf frábæra sendingu á Brasilíumanninn sem skoraði. Everton had 3 chances in the first half vs. Southampton — all of them were created by Gylfi Sigurdsson.Slotting into the James Rodriguez role seamlessly. 🎩 pic.twitter.com/wd31JOLcCM— Statman Dave (@StatmanDave) March 1, 2021 Everton virtist vera tvöfalda forystuna á 26. mínútu er Michael Keane skoraði en eftir skoðun í VARsjánni var markið dæmt af vegna rangstæðu. Southampton ógnaði með hraða sínum og krafti en þeir fengu nokkur góð færi, sér í lagi í síðari hálfleik. Danski varnarmaðurinn Jannick Vestergaard fékk dauðafæri á 89. mínútu en Jordan Pickford sá við honum. Lokatölur 1-0. Everton er í sjöunda sætinu með 43 stig, jafn mörg og grannarnir í Liverpool, en Everton á leik til góða. Southampton er í fjórtánda sætinu með 30 stig. FT Everton 1-0 SouthamptonBack-to-back wins for Everton, but more misery for Southampton.Richarlison's ninth-minute strike is enough to earn the Toffees all three points.#EVESOU— BBC Sport (@BBCSport) March 1, 2021 Enski boltinn