Skoðun

Ekki tjáir að deila við dómarann

Silja Dögg Gunnarsdóttir skrifar

Dómstólar eru ein af grunnstoðum réttarríkisins. Hlutverk þeirra er að skera úr um rétt og skyldu manna að lögum. Þegar kemur að skipun dómara þá er eðli málsins samkvæmt vandað til vinnubragða og miklar kröfur eru gerðar til þeirra sem fara með dómsvald. Þrátt fyrir að túlka megi stjórnarskrána svo að eingöngu embættisdómarar megi annast dómsýslu, þá er það ekki svo þegar nánar er skoðað. Aðstoðarmenn dómara fara með dómsvald. Fræðimenn hafa verið sammála um að aðrir en embættisdómarar geti farið með dómsvald í vissum tilvikum. Þessa heimild hlýtur þó að þurfa að túlka þröngt enda er hér um að ræða undantekningu frá meginreglu.

Samræming milli héraðsdóma

Árið 2012 fengu aðstoðarmenn dómara víðtækara hlutverk. Þeir hafa nú heimild til þess að annast þinghöld í einkamálum og sakamálum að vissum skilyrðum uppfylltum. Vissulega hafa aðstoðarmenn dómara verið svar við auknu álagi á dómstóla, en það má þó ekki verða á kostnað sjálfstæðis dómsvaldsins. Undirrituð sendi dómsmálaráðherra fyrirspurn í vetur um aðstoðarmenn dómara. Þau svör sem mér bárust gáfu efni til þess að leggja fram þingsályktunartillögu þar sem dómsmálaráðherra falið að undirbúa frumvarp til laga til þess að skýra frekar á um hlutverk aðstoðarmanna dómara. Markmiðið með lagasetningunni yrði m.a. að samræma skylduþjálfun, kveða á um hagsmunaskráningu og samræma hlutverk aðstoðarmanna milli héraðsdóma. En eins og staðan er í dag er þetta ekki nægilega skýrt.

Þyngri dómar og hlutverk aðstoðarmanna

Í svari dómsmálaráðherra við fyrirspurn minni kom einnig fram að ekki væri til skráning á því hve marga dóma aðstoðarmenn dómara hafa kveðið upp þar sem refsing er þyngri en eins árs óskilorðsbundið fangelsi. Því legg ég einnig fram í þingsályktunartillögunni að dómsmálaráðherra verði falið að tryggja skráningu og utanumhald dóma sem aðstoðarmenn dómara kveða upp og hafa kveðið upp í sakamálum þar sem refsing er þyngri en eins árs óskilorðsbundið fangelsi. Síðast en ekki síst þarf að gæta þess að að fyrirkomulag um aðstoðarmenn dómara sé í samræmi við alþjóðlegar skuldbindingar íslenska ríkisins, sérstaklega mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994.

Tilgangurinn með þessari þingsályktunartillögu er að stuðlað að auknu trausti á vinnu aðstoðarmanna dómara. Þeir gegna mikilvægu hlutverki en skýra verður betur hlutverk þeirra og tilgang.

Höfundur er þingmaður Framsóknarflokksins.




Skoðun

Skoðun

21 blár

Jón Pétur Zimsen skrifar

Sjá meira


×