Innlent

Smitaðir vinnufélagar mættu í vinnuna þrátt fyrir einkenni

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Þórólfur segir næstu daga munu leiða í ljós hvort um sé að ræða útbreitt smit.
Þórólfur segir næstu daga munu leiða í ljós hvort um sé að ræða útbreitt smit. Vísir/Vilhelm

Einstaklingarnir tveir sem greindust með Covid-19 í gær eru vinnufélagar á höfuðborgarsvæðinu. Báðir höfðu verið með einkenni í tvo til þrjá daga áður en þeir fóru í sýnatöku.

Þetta segir Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir í samtali við Vísi en hann segir óljóst hvar viðkomandi smituðust og þá á eftir að raðgreina sýnin. Hann segir að gera megi ráð fyrir að fleiri muni greinast og nokkur fjöldi muni þurfa að fara í sóttkví.

„Þeir voru í vinnu og búnir að umgangast aðra með einkennin,“ segir Þórólfur og ítrekar að þetta sé nákvæmlega sú hætta sem heilbrigðisyfirvöld hafi verið að vara við; að ef fólk mæti ekki í sýnatöku við minnstu einkenni sé hætt við að aðrir verði útsettir fyrir smiti.

Spurður að því hvort smitin, sem greindust bæði utan sóttkvíar, hafi áhrif á afléttingu aðgerða, segir Þórólfur það munu koma í ljós á næstu dögum.

„Þetta undirstrikar það sem við erum alltaf að segja; veiran er úti í samfélaginu. Hún er ekki farin og við getum áfram séð hópsýkingar, vonandi ekki stórar, en þetta stendur allt og fellur með því hvernig fólk hegðar sér sem einstaklingar.“

Sóttvarnalæknir brýnir enn og aftur fyrir landsmönnum að fara strax í sýnatöku við minnstu einkenni og vera ekki í kringum annað fólk fyrr en niðurstöður liggja fyrir.

„Við erum ekki laus við þessa veiru en ég held að við getum haldið áfram að fikra okkur í að aflétta. En þetta verður að koma í ljós á næstu dögum.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×