Hljóp berrössuð milli bæja Bryndís Sigurðardóttir skrifar 3. júní 2021 13:31 Í síðustu viku dreymdi mig að ég hlypi allsnakin hér um sveitina og næstu sveitir og bankaði á hvers manns dyr en enginn kom til dyra. Nú veit ég hvernig skuli ráða þennan draum. Ég hef opinberað fyrir alþjóð mín innstu heilbrigðismál; það þarf talsvert að ganga á svo kona geri það. Mín persóna er þó að sjálfsögðu aukaatriði í stóra samhenginu en stundum þarf að tengja raunveruleikann við manneskju, ekki bara excel-skjal og reglur. Sagan í stuttu máli: Ég er fílhraust, stálhraust, og þess vegna kom það mér í opna skjöldu í ágúst 2020 að greinast með frumubreytingar og HPV smit; ég sem er ódauðleg og ekkert slæmt getur gerst hjá mér. Talsverður skellur skal ég segja ykkur. Hafði trassað í nokkur ár að mæta í skimun, þrátt fyrir skammir móður minnar sem hafði lagt mikla áherslu á að við dæturnar mættum í krabbameinsskimanir vegna talsverðrar sögu um krabbamein í fjölskyldunni. Samkvæmt svari frá Krabbameinsfélagi Íslands, sem barst eftir 21 dag, átti ég að mæta aftur í rannsókn eftir 6 mánuði og ég skellti mér aðra rannsókn í janúar. Bið landlækni afsökunar á að hafa mætti mánuði of snemma. Vegna minnar eðlislægu og meðfæddu bjartsýni og óbilandi trúar minnar á því ekkert illt gæti hent mig, var ég sallaróleg þó ekki bærust svör eftir 21 dag, það var jú verið að breyta fyrirkomulaginu og mér datt ekki annað í hug en þetta væri allt í góðum farvegi. Þegar hins vegar voru liðnir 100 dagar fóru að renna á mig tvær grímur; liðnir voru átta mánuðir frá því að mér var tjáð að hugsanlega væri ég með lífshættulegan sjúkdóm, þetta er ekkert grín. Ég hófst handa við að kanna afdrif sýnisins sem tekið var í janúar, og svona í „forbifarten“ get ég upplýst að leghálssýnataka er ekki skemmtisigling og engin hætta á því að konur fari að stunda þetta í óhófi. Með góðra manna hjálp tókst mér að fá upplýsingar í síma um að ekki hefðu greinst frumubreytingar en áfram væri HPV smit og ég átti að koma aftur eftir ár. Á mig voru þá runnar tvær grímur hvað varðar nýtt skipulag og gæði þess og mér fannst ekki endilega að hægt væri að treysta kerfinu. Skellti mér því aftur í það eftirsótta skemmtiatriði að láta taka nýtt sýni, sem kvensjúkdómalæknir tók 12. maí, en þá hafði hann ekki fengið neinar upplýsingar um afdrif sýnisins sem hann tók 12. janúar. Nokkrum dögum seinna berast til hans upplýsingar og hann gerir þau leiðu mistök að senda mér póst um að ekkert hafi greinst í sýninu 12. janúar og ég eigi að koma eftir 5 ár! Tveimur dögum seinna kemur bréf inn á island.is (121 dögum frá sýnatöku 12. janúar) um að sýnið mitt hafi verið rannsakað með tilliti til HPV og hafi reynst jákvætt og ég eigi að koma eftir eitt ár; ekkert um hvort rannsakaðar hafi verið frumubreytingar og þar af leiðandi engar upplýsingar um hvort greinst hafi frumubreytingar. Á þessum tímapunkti var konan að missa kúlið og lái henni hver sem vill. Og hvað svo?! Í Kastljósi þann 2. júní kom í ljós að þrátt fyrir að ákvörðun um flutning krabbameinsskimana frá Krabbameinsfélagi Íslands hafi verið tekin árið 2019 er verið að vinna þarfagreiningu verkefnisins núna í sumar, sumarið 2021! Það að einhver mér allsendis ókunnur læknir skrifi mér bréf frá Heilsugæslunni í Hamraborg, sem vel að merkja ég hef aldrei mætt á, um að umrætt sýni frá 12. maí sé skilgreint sem „ofskimun“ og verði ekki rannsakað er að mínu mati stórfurðulegt en að landlæknir orði þetta eins og haft er eftir henni á Visi.is í dag að „Konur geti ekki pantað sér skimun að eigin ósk“ finnst mér hreinlega móðgandi og niðurlægjandi. Elsku landlæknir Alma Möller, Svandís Svavarsdóttir frábærasti heilbrigðisráðherra í sögu landsins og Óskar Reykdalsson stórkostlegi læknir og forstjóri Heilsugæslu Reykjavíkursvæðisins: Ég þori að fullyrða að konur fara ekki að taka upp á því storma í leghálsskimanir að óþörfu. Sýnið nú auðmýkt og viðurkennið að þetta verkefni hefur klúðrast „big tæm“ og hefur ekki þjónað okkur konum með fullnægjandi hætti. Kerfið er í rugli og ef konur treysta ekki niðurstöðum sýna í þessu ástandi, rannsakið aftur. Biðjið okkur afsökunar, ekki vaða í fjölmiðla með yfirlýsingar um að þetta sé í lagi. Mamma myndi orða það þannig að þið ættuð frekar að skammast ykkar. Ps. Ég hef óskað eftir að fá leghálssýnið mitt frá 12. maí afhent. Það verður hluti af listaverki sem heitir „Computer Says No“. Höfundur er sölustjóri og kona. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skimun fyrir krabbameini Heilbrigðismál Heilsugæsla Mest lesið Hver á lokaorðið? Meðlimir í Ung gegn ESB-aðild Skoðun Pylsa á stærð við bankakerfi Hjálmar Vilhjálmsson Skoðun Það vaknar enginn með sæstreng í bakgarðinum Jóna Þórey Pétursdóttir Skoðun Verum ekki lítil - Ákall til ungu kynslóðarinnar Kristrún Ágústsdóttir Skoðun Já til að sjá hvað? Geir Finnsson Skoðun Amma og afi, plís ekki kjósa gegn okkur Hnikarr Bjarmi Franklínsson Skoðun Trúum á enn stærra og sterkara Ísland Þórður Snær Júlíusson Skoðun Við getum valið að hætta að rífast – um krónuna Dagbjört Hákonardóttir Skoðun Til unga fólksins Illugi Jökulsson Skoðun Óvissan í alþjóðamálum - Hvað ef Norðmenn verða á undan? Dagur B. Eggertsson Skoðun Skoðun Skoðun Á matur að vera ódýr? Sæmundur Jón Jónsson skrifar Skoðun Baráttan um Ísland Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Verum ekki lítil - Ákall til ungu kynslóðarinnar Kristrún Ágústsdóttir skrifar Skoðun Af hverju þarf þolandinn alltaf að færa sig? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Er erfitt að taka ákvörðun? Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar Skoðun Hugrekki til að breyta Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Fljótlegasta leiðin til að lækka verðbólgu og vexti er að segja NEI 29. ágúst Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Ósýnileg stjórnarskrárákvæði Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Pylsa á stærð við bankakerfi Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Já til að sjá hvað? Geir Finnsson skrifar Skoðun Íslenskur landbúnaður til framtíðar: Hvaða tækifæri gætu falist í Evrópusamstarfi? Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Við getum valið að hætta að rífast – um krónuna Dagbjört Hákonardóttir skrifar Skoðun Ísland sé frjálst meðan sól gyllir haf Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Þjóðaratkvæði-til hvers ? Egill Þórir Einarsson skrifar Skoðun Er Ísland nógu gott fyrir Evrópu? Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar Skoðun Path Dependencies and Critical Junctures: A Response to Baudenbacher Maximilian Conrad skrifar Skoðun Umræðan í aðdraganda kosninga Geir Rögnvaldsson skrifar Skoðun Suðurlandi allt Sandra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Amma og afi, plís ekki kjósa gegn okkur Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Skoðun Hver á lokaorðið? Meðlimir í Ung gegn ESB-aðild skrifar Skoðun Nei við ESB er ekki nei við Evrópu Monika Margrét Stefánsdóttir skrifar Skoðun Kjörklefinn er síðasti hlekkurinn, ekki sá fyrsti Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Það vaknar enginn með sæstreng í bakgarðinum Jóna Þórey Pétursdóttir skrifar Skoðun Til unga fólksins Illugi Jökulsson skrifar Skoðun Innsæi og góð dómgreind á tímum óvissu Hrund Gunnsteinsdóttir skrifar Skoðun Hvað gæti ESB-aðild þýtt fyrir almenna íbúa landsbyggðanna? Stefanía V. Gísladóttir skrifar Skoðun Hvönnin í bjarginu Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Hvernig fór síðasti heimsendir? Vilhelm Jónsson skrifar Skoðun Um tjáningu fullveldis Arnór Sighvatsson skrifar Skoðun 25,2% árangur Gísli Garðarsson skrifar Sjá meira
Skoðun Fljótlegasta leiðin til að lækka verðbólgu og vexti er að segja NEI 29. ágúst Eggert Sigurbergsson skrifar
Skoðun Íslenskur landbúnaður til framtíðar: Hvaða tækifæri gætu falist í Evrópusamstarfi? Sveinn Atli Gunnarsson skrifar
Skoðun Path Dependencies and Critical Junctures: A Response to Baudenbacher Maximilian Conrad skrifar