Erlent

Níu og fjögurra ára keyrðu af stað til Kali­forníu til að synda með höfrungunum

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Á myndinni er hvorugt barnanna sem um ræðir.
Á myndinni er hvorugt barnanna sem um ræðir. Getty

Tvær barnungar stúlkur í Utah í Bandaríkjunum tóku sig til og óku af stað til Kaliforníu, á bíl foreldra sinna, til þess að synda með höfrungunum.

Systurnar, sem eru níu og fjögurra ára, eru auðvitað hvorugar með bílpróf og fór ekki betur en svo a þær keyrðu utan í bíl og lentu svo framan á sendiferðabíl. Hvorug þeirra meiddist við herlegheitin, enda báðar spenntar í sætisbeltin.

Stúlkurnar, ákveðnar í því að komast til höfrunganna í Kaliforníu, lögðu af stað í háskaförina á miðvikudagsmorgun, gripu lyklana að Chevy Malibu bíl foreldra sinna og laumuðust út um kjallaradyrnar heima hjá sér.

Eldri systirin settist í bílstjórasætið og systir hennar við hlið hennar í farþegasætið og þær keyrðu af stað. Þrátt fyrir að vera óvanir ökumenn tókst þeim að keyra 16 kílómetra burt frá heimili sínu í West Jordan til West Valley borgar, þar á meðal á hraðbrautinni.

Bílstjóri sendiferðabílsins, sem stúlkurnar klesstu að lokum á, hafði tekið eftir bílnum þeirra en hann varð vitni að því þegar bíllinn skall utan í annan bíl. Bílstjórinn stóð í þeirri trú að ökumaður bifreiðarinnar væri í einhvers konar annarlegu ástandi og ákvað að elta bílinn. Það var ekki fyrr en eftir að lokaáreksturinn varð sem hann sá stúlkurnar tvær, einar, í bílnum, sér til mikillar furðu.

„Þær töluðu um að þær ætluðu til Kaliforníu að synda með höfrungunum og fara á ströndina. Þær sögðu líka að þær hafi vaknað klukkan þrjú til að leggja af stað,“ sagði Scott List, rannsóknarlögreglumaður í West Jordan í samtali við fréttamenn.

„Foreldrarnir voru skelfingu lostnir þegar þeir komu að tómum rúmum,“ sagði hann. Samkvæmt fréttaflutningi ABC4 höfðu foreldrarnir talað um það fyrir einhverju síðan að fara í frí til Kaliforníu, sem gæti hafa verið kveikjan að þessari bráðskemmtilegu en jafnframt hættilegu hugmynd stúlknanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×